Mamma Maguire fylltist viðbjóði Sindri Sverrisson skrifar 22. maí 2026 12:47 Harry Maguire var í liði Englands gegn Japan í mars en fær ekki sæti í HM-hópnum. Getty/Robin Jones Harry Maguire er í sannkölluðu áfalli yfir því að hafa ekki verið valinn í HM-hóp Englands og mamma hans fylltist viðbjóði yfir ákvörðun Thomasar Tuchel.
Þjóðverjinn Tuchel tilkynnti í morgun 26 manna landsliðshóp Englands sem heldur til Bandaríkjanna og spilar þar sinn fyrsta leik á HM 17. júní, gegn Króötum. Strax í gær sendi Maguire frá sér yfirlýsingu þar sem þessi 33 ára miðvörður, sem þótt hefur spila vel að undanförnu með Manchester United, lýsti yfir vonbrigðum sínum enda ást hans á enska landsliðinu óumdeild. Tuchel hefur furðað sig á viðbrögðum leikmannsins. „Ég er sannfærður um að ég hefði getað spilað stórt hlutverk í sumar fyrir landsliðið, eftir tímabilið sem ég hef átt. Ég er í áfalli og miður mín yfir ákvörðuninni. Ég hef ekkert elskað heitar en að klæða mig í landsliðstreyjuna og spila fyrir þjóð mína síðustu ár. Ég óska leikmönnunum alls hins besta í sumar,“ skrifaði Maguire. Zoe, mamma hans, er sömuleiðis í áfalli yfir niðurstöðunni og hún skrifaði á X: „Fylltist algjörlega viðbjóði.“ Á meðal varnarmanna sem Tuchel valdi í stað Maguire eru Dan Burn hjá Newcastle, Ezri Konsa hjá Aston Villa, Jarell Quansah hjá Leverkusen og John Stones hjá Manchester City. „Ég varð hissa,“ sagði Tuchel á blaðamannafundi í morgun þar sem að hann fór yfir val sitt á HM hópnum. „En ég virði hans persónuleika og hæfileika mjög mikið. Ég get skilið vonbrigðin og ástæðuna á bakvið þau. Samt sem áður varð ég smá hissa vegna þess að við áttum einkasamtal þar sem að hann fékk tækifæri til þess að koma tilfinningum sínum gagnvart þessu á framfæri.“ Maguire, sem á að baki 66 A-landsleiki fyrir England, spilaði ekkert í undankeppni HM og einu leikirnir sem hann hefur spilað undir stjórn Tuchel eru æfingaleikir í mars fyrr á þessu ári. „Við kusum að halda tryggð við miðverðina sem hafa komið okkur í gegnum landsliðsverkefnin í september, október og nóvember. Sumir þeirra eru hluti af leiðtogahópi þessa landsliðs og setja hátt gæðastig.“
Enski boltinn Manchester United HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Fótbolti Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira