Viðskipti innlent

Verk­falli hafnaverkafólks í Sunda­höfn af­lýst

Samúel Karl Ólason skrifar
Viðræður vegna bátsmanna og háseta á skipum Eimskips hafa ekki skilað árangri.
Viðræður vegna bátsmanna og háseta á skipum Eimskips hafa ekki skilað árangri. Vísir/Vilhelm

Ótímabundnu verkfalli hafnaverkamanna í Sundahöfn hefur verið aflýst. Það er eftir að Samtök atvinnulífsins og Sjómannafélag Íslands gerðu samkomulag sem felur í sér að gera á hæfnigreiningu á hafnarstörfum.

Verkfallið átti að hefjast í næstu viku eða þann 26. maí. Viðræður í kjaradeilum bátsmanna og háseta á skipum Eimskips hafa ekki skilað árangri.

Sjá einnig: Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll

Þegar kemur að hafnaverkamönnum hefur viðræðum um gerð kjarasamnings verið frestað til 31. október og gildir friðarskylda á tímabilinu, samkvæmt tilkynningu.

Hefjast á handa við innleiðingu á formlegu hæfnilaunakerfi fyrir hafnaverkafólk. Það á að byggja á hlutlægri greiningu starfa „þar sem hæfni, færni og ábyrgð starfsfólks skapar grundvöll fyrir skilvirkari launasetningu og skýrari launaþróun.“

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins mun sjá um röðun starfa í hæfniþrep en það gundvallast á íslenska hæfnisrammanum.

Þessari vinnu á að vera lokið fyrir 25. október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×