Launastefna Seðlabankans: Hverjir sitja eftir? Ingvar Freyr Ingvarsson og Sigrún Brynjarsdóttir skrifa 21. maí 2026 08:01 Stöðugleiki má ekki byggja á því að menntun borgi sig sífellt verr. Í nýrri rammagrein Seðlabanka Íslands er því haldið fram að almennar umsamdar launahækkanir ættu til lengri tíma að vera um 2% á ári til að samrýmast verðbólgumarkmiði bankans. Afgangurinn af „svigrúminu“ eigi að fara í launaskrið og sértækar hækkanir lægstu launa. Þetta er ekki hlutlaus greining heldur pólitísk afstaða um það hvernig laun eigi að þróast á innlendum vinnumarkaði. Undanfarin ár hafa krónutöluhækkanir dregið verulega úr launamun milli starfa þar sem gerð er mismunandi krafa um menntun, ábyrgð og sérfræðiþekkingu. Þær hafa skilað hlutfallslega mestum hækkunum lægstu launa, á sama tíma og stórir hópar háskólamenntaðra hafa setið eftir. Þetta getur haft víðtækar samfélagslegar afleiðingar, þar á meðal skort á háskólamenntuðu fólki í greinum þar sem laun endurspegla ekki ábyrgð, kostnað og tíma sem fer í menntun á háskólastigi. Rannsókn Hagfræðistofnunar á virði háskólamenntunar frá 2025 sýnir að fjárhagslegur ábati af háskólamenntun hefur dregist saman og hallar í dag á þá sem verja mörgum árum og miklum kostnaði í menntun. Það er bæði mikilvægt og réttlætanlegt að bæta kjör þeirra sem eru lægst launuð. En hagfræðin er skýr: ef það er gert ár eftir ár með því að þjappa saman launaspönninni, veikjast hvatar til menntunar. Háskólamenntaðir koma seinna inn á vinnumarkaðinn, oft með þunga greiðslubyrði vegna námslána og hefja lífeyrissparnað síðar en aðrir. Þegar launamunur minnkar, minnkar einnig hvati til sérhæfingar. Samfélagið byggir á sérfræðiþekkingu: kennslu, hugverkum, heilbrigðisþjónustu, verkfræði, skapandi greinum og annarri fagþekkingu. Ef launastefnan endurspeglar ekki verðmæti menntunar og ábyrgðar veikjast hvatar til sérhæfingar, með neikvæðum afleiðingum fyrir allt samfélagið. Seðlabankinn bendir á að launaskrið sé breytilegt og ráðist af stöðu hagkerfisins og ytri þáttum. Það undirstrikar að þróun þess er óviss og ræðst af aðstæðum hverju sinni. BHM bendir á að ekki sé hægt að byggja stöðugleika á því að draga kerfisbundið úr arðsemi menntunar. Til lengri tíma ræðst hagvöxtur fyrst og fremst af aukinni verðmætasköpun á hverja vinnustund, með öðrum orðum, aukinni framleiðni. Þetta samræmist nýrri atvinnustefnu stjórnvalda. Sú þróun byggir m.a. á því að hagkerfið nýti og umbuni sérhæfðri þekkingu og færni. Launastefna sem dregur markvisst úr ávinningi menntunar og sérhæfingar vinnur gegn þeim markmiðum. Úr peningamálum 2/2026. Höfundar eru hagfræðingar hjá BHM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kjaramál Verðlag Seðlabankinn Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar