Körfubolti

Pirraður yfir því hvernig Baldur yfir­gaf Stjörnuna

Aron Guðmundsson skrifar
Einar Karl Birgisson, formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar (til vinstri / Aðsend ljósmynd: Jóhann Jóhannsson tók) og Baldur Þór Ragnarsson, fyrrverandi þjálfari Stjörnunnar sem gerði liðið að Íslandsmeisturum í fyrsta sinn í sögunni árið 2025.
Einar Karl Birgisson, formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar (til vinstri / Aðsend ljósmynd: Jóhann Jóhannsson tók) og Baldur Þór Ragnarsson, fyrrverandi þjálfari Stjörnunnar sem gerði liðið að Íslandsmeisturum í fyrsta sinn í sögunni árið 2025. Jóhann Jóhannsson (Mynd af Einari) / Hulda Margét (Mynd af Baldri Þór)

Einar Karl Birgis­son, for­maður körfu­knatt­leiks­deildar Stjörnunnar, segir pirring sem er til staðar sökum brott­hvarfs Baldurs Þórs Ragnars­sonar úr starfi þjálfara karla­lið félagsins ekki stafa af því að hann hafi farið, heldur því með hvaða hætti hann hafi yfir­gefið Stjörnuna. Leit að nýjum þjálfara gengur vel og er búist við því að form­legar viðræður hefjist í þessari viku.

Það kom mörgum í opna skjöldu þegar að greint var frá því að Baldur Þór Ragnars­son, sem gerði karla­lið Stjörnunnar að Ís­lands­meisturum í körfu­bolta í fyrsta sinn í sögunni árið 2025, hefði ákveðið að hætta þjálfun liðsins eftir nýaf­staðið tíma­bil.

Eins og það væri ekki nóg féll hakan nánast í gólfið þegar að greint var frá því að Baldur hefði verið ráðinn þjálfari Álfta­ness, nágranna­liðs Stjörnunnar í Garða­bæ. Forráða­menn Stjörnunnar voru ekki á leið í þjálfara­leit en skjótt skipast veður í lofti.

„Við héldum að Baldri liði vel í Stjörnunni og hann er stór hluti af því um­hverfi sem við erum búin að skapa í kringum körfu­boltann síðustu tvö ár,“ segir Einar Karl, for­maður körfu­knatt­leiks­deildar Stjörnunnar í sam­tali við Vísi.

Sagði upp degi eftir leik

„Auðvitað vissum við hann gæti sagt upp samningi sínum upp á þessum tíma­punkti og við lögðum okkur alla fram við að halda honum. Enda einn af betri þjálfurum deildarinnar. Auðvitað gat hann farið, það var vitað. En hvernig hann fór er meira það sem að situr í okkur.“

Um­rædd ákvörðun Baldurs kom degi eftir að Stjarnan féll úr leik í undanúr­slitum Bónus deildarinnar gegn Tindastól eftir odda­leik í Síkinu á Sauðárkróki.

„Hann nýtti sér upp­sagnarákvæði sem var í samningnum daginn eftir síðasta leik gegn Tindastól. Síðan höfum við verið að vinna út frá því.“

„Baldur tók þessa ákvörðun“

Hlynur Bærings­son, einn allra besti körfu­bolta­maður Ís­lands frá upp­hafi og Ís­lands­meistari með Stjörnunni á sínum tíma undir stjórn Baldurs sagði frá því í körfu­bolta­kvöldi að pirringur væri meðal Stjörnu­fólks vegna ákvörðunar Baldurs. Einar endur­ómar þau orð.

„Já það er mikill pirringur. Pirringurinn snýr ekki að því að hann skyldi fara. Heldur því hvernig hann fór. Ég skil að áhorf­endur, stuðnings­menn og styrktaraðilar sem ekki sátu við samninga­borðið séu pirraðir. Ég skil það mjög vel.

Einar Karl með Íslandsbikarinn eftir frækinn sigur Stjörnunnar í Síkinu í oddaleik árið 2025Aðsend mynd

Ég er bara kominn í næsta verk­efni. Að ráða nýjan þjálfara fyrir Stjörnuna. Metnaður okkar er áfram sá að verða Ís­lands­meistari árið 2027. Baldur tók þessa ákvörðun. Við höfum ekkert um hana að segja annað en að við þurfum að halda áfram. Tryggja okkur með lið og þjálfara sem getur unnið deildina.“

Setur þetta svartan blett á ykkar sam­starf? Hvernig mun sagan dæma þetta sam­starf ykkar?

„Tíminn verður að leiða það í ljós. Við berum engan kala til Baldurs. Hann vann með okkur fyrsta Ís­lands­meistara­titilinn og það tekur það enginn af honum. En við höfum engan tíma til þess að vera úti í sól­baði. Þurfum að halda áfram á þeirri veg­ferð sem við erum á. Að klára ráðningu nýs þjálfara.“

Íslandsmeistaratitli fagnað í Síkinu árið 2025vísir/hulda margrét

Svíður það að Baldur hafi gerst þjálfari hjá nágrönnum ykkar í Álfta­nesi?

„Nei í raun og veru ekki. Við teljum okkur vera með þannig um­hverfi að ef þjálfara vilja ekki vinna í því um­hverfi þá endar sam­starf svona. Það eru það margir sem vilja þjálfa Stjörnuna að ég kvíði framtíðinni ekki neitt.“

Nálgast ráðningu á þjálfara

Og leitin að arf­taka Baldurs gengur vel og segir Einar að starfið sem unnið hefur verið í Garða­bæ undan­farin tvö ár vinni nú með Stjörnunni.

„Hefur orðið til þess að margir ís­lenskir og er­lendir þjálfarar vilja þjálfa Stjörnuna. Það hefur meira verið vinna fyrir okkur að hitta og tala við alla þá sem hafa þann metnað að leiða okkur áfram til þess að verða aftur Ís­lands­meistarar. Sú vinna hefur tekið smá tíma. Við erum búnir að þrengja hópinn og ég vænti þess að form­legar viðræður við næsta þjálfara Stjörnunnar hefjist fyrir viku­lok.“

Ægir Þór Steinarsson er einn af lykilmönnum Stjörnunnar.vísir / hulda margrét

Hvað varðar lykil­menn Stjörnu­liðsins á borð við Hilmar Smára Hennings­son, Ægi Þór Steinars­son og Orra Gunnars­son segir Einar þau mál hluta af viðræðunum sem eru í gangi sam­hliða viðræðum við nýjan þjálfara Stjörnunnar.

„Ægir og Orri eru meiddir eins og er en við erum á fullu núna að setja saman lið. Það bíður nýs þjálfara að vinna það með okkur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×