Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Samúel Karl Ólason skrifar 19. maí 2026 23:35 Westh myrti Emilie Meng árið 2016. Maðurinn sem var dæmdur fyrir að ræna og myrða hina sautján ára Emilie Meng árið 2016 hefur viðurkennt að hafa myrt hana, tíu árum eftir að hún hvarf sporlaust á Sjálandi í Danmörku.
Philip Westh, sem er 35 ára gamall, var dæmdur árið 2024 fyrir að myrða Meng og einnig fyrir að hafa reynt að nauðga henni. Auk þess var hann dæmdur fyrir að ræna og reyna að myrða þrettán ára stúlku árið 2023 og fyrir að reyna að ræna fimmtán ára stúlku árið 2022. Hann var úrskurðaður í lífstíðarfangelsi en játaði verknaðinn aldrei, fyrr en nú. Þegar hann var sakfelldur mótmælti Westh en lögregluþjónar ræddu nýverið við hann á nýjan leik um málið. Mun hann þá hafa játað og er hann einnig sagður hafa veitt frekari upplýsingar um mannránstilraunina á þrettán ára stúlkunni. Lík Meng fannst í stöðuvatni á Sjálandi í desember 2016, tæpu hálfu ári eftir að hún hvarf. Snemma að morgni 10. júlí það ár kvaddi hún tvær vinkonur sínar á lestarstöð í Korsør, vestast á Sjálandi. Vinkonurnar tóku leigubíl heim en Meng ætlaði að ganga fjóra kílómetra heim og hlusta á tónlist. Það var í síðasta sinn sem hún sást á lífi. Danska ríkisútvarpið hefur eftir sérfræðingi að játningin breyti í raun litlu þegar kemur að dóminum gegn honum. Hún gæti þó haft þýðingu fyrir fjölskyldu Meng, sem geta nú talið sig fullviss um að rétti maðurinn hafi verið dæmdur, þó að litlar efasemdir hafi verið uppi um sekt hans. Á sínum tíma fannst lífsýni úr Meng á límbandi á heimili Wesths. Það var árið 2023, eftir að áðurnefndri þrettán ára stúlku var rænt. Hún fannst á heimili Westh þar sem hann hafði haldið henni í 27 klukkustundir og nauðgað henni ítrekað. Sjá einnig: „Aðeins skrímsli gæti gert barni þetta“ DR hefur eftir lögmanni Wesths að hann hafi loks játað því hann vildi axla ábyrgð.
Danmörk Erlend sakamál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Skafið og saltað Veður Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira