Streymdu árásinni í beinni á netinu Samúel Karl Ólason skrifar 19. maí 2026 21:07 Skjáskot úr streyminu af árásinni. Bæði árásarmennirnir og vopn þeirra voru skreytt nasistatáknum. Ungu mennirnir sem skutu þrjá til bana við mosku í San Diego í Bandaríkjunum í gær streymdu árásinni í beinni útsendingu á netinu. Þeir voru vopnaðir þremur byssum, hálfsjálfvirkum riffli, haglabyssu og skammbyssu, sem þeir höfðu skreytt með nasistatáknum og báru þeir einnig slík tákn á fatnaði sínum.
Lögreglan hefur ekki staðfest nöfn árásarmannanna en fjölmiðla vestanhafs segja að þeir heiti Cain Clark (17) og Caleb Vazquez (18). Þeir eru sagðir hafa kynnst á netinu þar sem þeir munu einnig hafa öfgavæðst. Þeir deildu samkvæmt lögreglu miklu hatri á þeldökku fólki og öðrum trúbrögðum en kristni. Árás þeirra á moskuna Islamic Center í San Diego í gær er til rannsóknar sem hatursglæpur. Sjá einnig: Táningar skutu þrjá fyrir utan mosku í San Diego AP fréttaveitan segir að nokkrum klukkustundum fyrir árásina hafi móðir annars þeirra hringt í lögregluna. Þá sagði hún að sonur hennar væri í sjálfsvígshugleiðingum og að hann hefði tekið byssur af heimili þeirra og farið á bíl hennar. Tveimur tímum eftir símtalið hófu þeir Clark og Vazquez skothríð fyrir utan moskuna. Meðal annars myrtu þeir öryggisvörð, sem sagður er hafa bjargað lífi fólks með því að koma í veg fyrir að árásarmennirnir kæmust lengra en inn í anddyri moskunnar. Fjöldi barna var á svæðinu, þar sem skóli er einnig rekinn þar. Eftir að þeir skutu öryggisvörðinn og tvo aðra menn til bana fóru þeir aftur í hvítan BMW sem þeir voru á. Samkvæmt frétt New York Post sýndi beina útsendingin þá hvernig Clark skaut Velasquez tvisvar sinnum í höfuðið og svipti sig svo sjálfan lífi í bílnum, skammt frá moskunni. San Diego mosque shooters were 'radicalized online,' wore Nazi symbols, inscribed vile 3-word message on guns https://t.co/Robm0Zqb7m pic.twitter.com/vaZEM0ppER— New York Post (@nypost) May 19, 2026 Eftir árásina hafa lögregluþjónar lagt hald á þrjátíu skotvopn og einn lásboga á heimilum þeirra tveggja.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Erlend sakamál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira