Opið bréf til formanns utanríkismálanefndar Haukur Arnþórsson skrifar 19. maí 2026 10:47 Hr. formaður utanríkismálanefndar Alþingis, Pawel Bartoszek. Reykjavík, 19. maí 2026. Sæll og blessaður. Mig langar til – í krafti þekkingar minnar á rannsóknaraðferðum – að benda þér á að spurningin í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst n.k. felur enn þá, eftir meðferð utanríkismálanefndar, í sér fullyrðingu. Hún felst í orðunum „að hefja á ný“. Ég hef áður látið í ljós þá skoðun að mjög erfitt sé að mæla afstöðu fólks til ákveðinna mála, jafnvel þótt um hlutlausa og fræðilega skoðanakönnun sé að ræða. En þegar um þjóðaratkvæðagreiðslu er að ræða í hápólitísku máli vandast málið. Það skiptir alltaf meginmáli hvernig spurningin sem mælitæki er orðuð. Og hún verður aldrei orðuð þannig að hún verði óyggjandi mælitæki – að ekki sé nú minnst á að spurningarinnar er aldrei spurt í tómarúmi; fjöldi ytri atriða hafa áhrif á svör. Ég fullyrti á félagsmiðlum þegar þingsályktunin var lögð fram á Alþingi að ekki mætti – að minnsta kosti ekki í fullkomnum heimi – vera fullyrðing í hreinum rannsóknarspurningum. Þannig gengi ekki að hafa orðin „halda áfram“. Aðrir fræðimenn hafa tekið undir þetta. Hið sama gildir um að „hefja á ný“. Óskiljanlegt er hvernig utanríkismálanefnd styður það orðalag þegar fyrir liggur hlutlaus tillaga þar sem segir „ganga til“ sem lýsir því sem gera á. Með tillögu sinni tekur utanríkismálanefnd þá áhættu að kjósendur velji svar við spurningunni á grundvalli hugrenningartengsla við samningsviðræður sem fóru fram fyrir tæplega einum og hálfum áratug og tókust ekki. Niðurstaða þeirrar tilraunar koma sjálfri spurningunni samt ekki við með nokkrum beinum hætti. Hugrenningatengsl skapast við ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem tapaði að lokinni setu sinni kosningum sögulega. Spurningin er einfaldlega aðferðafræðilega röng. Rökstyðja má að verulega neikvæðari svör fáist við spurning með „að hefja á ný“ en fengjust með spurningu með „að ganga til“. Af hverju vill meirihluti utanríkismálanefndar taka þessa áhættu – vill hún neikvæðara svar en annars yrði meðan minnihluti nefndarinnar vill jákvæðara svar? Ég legg hiklaust til að meirihluti utanríkismálanefndar geri tillöguna með orðalaginu „að ganga til“ að sinni og dragi til baka breytingartillöguna á þingskjali 1183 (meiri- og minnihlutaáliti utanríkismálanefndar). Svo ég segi nú allt í sama orðinu þá vil ég benda á að þjóðaratkvæðagreiðslur eru mjög viðkvæmar fyrir ytri áhrifum. Alltaf er hætt við að kosið sé um annað en spurt er um – þetta er umfram almennar hættur í hlutlausum rannsóknum – sem eru ærnar og hafa erfiðleikar í megindlegum rannsóknum að litlu leyti verið raktir hér. Þannig gæti ánægja með ríkisstjórnina aukið líkur á já-svari 29. ágúst og atburðir eins og lækkun verðbólgu og vaxta – meðan óánægja með ríkisstjórnina og slæm staða í fjármálum heimilanna gætu aukið líkur á nei-svari. Þannig er ekki á vísan að róa að svör þjóðarinnar við spurningunni 29. ágúst n.k. endurspegli einvörðungu afstöðu hennar til þess hvort ganga eigi til samninga við ESB – og mikilvægt að spurningin skapi hugrenningatengsl við það sem til stendur að gera fremur en fullyrðingar um það sem þegar hefur verið gert. Vinsamlegast, Dr. Haukur Arnþórsson,stjórnmálafræðingur með stjórnsýslu sem aðalviðfangsefni,ReykjavíkurAkademíunni,Hafnarstræti 5,101 Reykjavík. Höfundur er stjórnmálafræðingur með stjórnsýslu sem aðalviðfangsefni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Haukur Arnþórsson Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar