Styrktarleikur í Kópavogi: „Ofboðslega verðmætt og gefur okkur mikið“ Sindri Sverrisson skrifar 19. maí 2026 09:08 Bryndís Klara Birgisdóttir átti góð ár í Breiðabliki og spilaði á fjölda fótboltamóta með vinkonum sínum. Stórleikur Breiðabliks og FH í Bestu deild kvenna í fótbolta verður sérstakur styrktarleikur til stuðnings Minningarsjóðs Bryndísar Klöru. Foreldrar hennar rifja upp hve vel hún naut sín í fótboltanum og hlakka til að sjá Blika bleikklædda í anda dóttur sinnar.
Styrktarleikurinn verður á Kópavogsvelli næsta mánudagskvöld, þegar Breiðablik mætir FH klukkan 19:15. „Við hvetjum alla Kópavogsbúa, Blika, FH-inga og landsmenn alla til að fjölmenna á Kópavogsvöll og taka þátt í að efla kærleikann rétt eins og fjölskylda Bryndísar hefur gert af einstöku æðruleysi og styrk,“ segja Blikar í færslu um leikinn og birta myndband með viðtali við foreldra Bryndísar Klöru sem stungin var til bana á Menningarnótt sumarið 2024. View this post on Instagram A post shared by Breiðablik FC (@breidablikfc) Minningu Bryndísar Klöru hefur verið haldið á lofti með ýmsum hætti og foreldrar hennar, Iðunn og Birgir Karl, segja ómetanlegt að finna stuðninginn frá samfélaginu og sjá fólk sameinast í hennar nafni. Þau þakka Breiðabliki fyrir að standa nú fyrir sérstökum styrktarleik. „Hún var stoltur Bliki,“ segir Birgir Karl þegar foreldrarnir rifjuðu upp árin sem Bryndís Klara átti sem barn í Breiðabliki. Þau eru þakklát fyrir stuðninginn sem þau hafa fundið. „Þetta er náttúrulega atburður sem á ekki að geta gerst en það er greinilegt að hann á ekki að geta gerst aftur. Fólk er alltaf að róa öllum árum að því að þetta muni aldrei gerast aftur. Það er ofboðslega verðmætt og gefur okkur mikið, að sjá að þetta verði til einhvers,“ segir Birgir Karl. „Að fólk og félög haldi svona fallega viðburði til styrktar sjóðnum og Bryndísarhlíð, fullt af fólki í bleiku, það er yndislegt að sjá,“ segir Iðunn. „Við hlökkum til að sjá Blikana í bleikum búningi,“ bætir Birgir Karl við en styrktarleikurinn, sem um leið er einn af stórleikjum tímabilsins í Bestu deildinni, fer eins og fyrr segir fram næsta mánudagskvöld.
Besta deild kvenna Breiðablik Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira