Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Lovísa Arnardóttir skrifar 18. maí 2026 14:40 Myndin sýnir ásýnd mögulegrar þrjátíu metra hárrar brúar um Kleppsvík séð frá Gufuneshöfða. Efla verkfræðistofa HMS stefnir á að birta álit sitt á umhverfismati vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar. Vegna umræðu um tafir sem orðið hafa á umhverfismati Sundabrautar vill HMS árétta að tímarammi umhverfismatsins er á forræði framkvæmdaraðila. Framvinda málsins ræðst af því hvenær hann leggur fram gögn til yfirferðar HMS.
Fjallað var um málið í kvöldfréttum Sýnar fyrir um viku síðan. Þar sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra að hann hefði ákveðið að fela lögmannsstofu að rannsaka hvað skýri nærri ársseinkun á umhverfismati Sundabrautar. Hann sagði slíkar tafir fáheyrðar. Í yfirlýsingu frá HMS segir að þeim hafi ekki borist endanleg gögn frá framkvæmdaraðilanum fyrr en um miðjan mars síðastliðinn. Starfsfólk HMS hafi unnið að málinu af krafti síðan. Birta umhverfismat þremur vikum of seint „Sökum umfangs þeirra gagna sem lögð hafa verið fram mun álit HMS, að öllum líkindum, birtast um þremur vikum eftir að lögbundinn frestur rennur út. HMS harmar þetta en stofnunin leggur mikla áherslu á skilvirka afgreiðslu þeirra erinda sem henni berast,“ segir í yfirlýsingunni. Þar árétta þau að meðferð málsins hjá HMS sé ekki ástæða þess að umhverfismati framkvæmdarinnar hafi ekki verið lokið vorið 2025. Umhverfismatsskýrsla framkvæmdaraðila hafi borist HMS sumarið 2025. „Undirbúningur umhverfismatsskýrslu, þar á meðal rannsóknir og önnur gagnaöflun, er ávallt á forræði framkvæmdaraðilanna sjálfra. Hlutverk HMS er að fara yfir gögnin sem framkvæmdaraðili leggur fram, annast lögbundið samráð við almenning, opinberar stofnanir og aðra þá sem kunna að láta sig málið varða, auk þess sem stofnunin gefur álit sitt á matsáætlun og umhverfismatsskýrslu framkvæmdaraðila,“ segir í yfirlýsingu HMS. Mikill fjöldi umsagna Þau segja skiljanlegt að málið hafi tekið tíma. Sundabraut sé umfangsmikið verkefni og umhverfismat feli í sér fjölda álitaefna. Mikill fjöldi umsagna hafi sem dæmi borist í kynningu og ýmis álitamál komið upp sem hafi verið þörf á að bregðast við og leysa. „HMS bárust, sem áður segir, endanleg gögn og svör framkvæmdaraðila við fyrrnefndum umsögnum þann 16. mars síðastliðinn. Samkvæmt lögbundnum tímafrestum hefði stofnunin átt að leggja fram endanlegt álit sitt á umhverfismati framkvæmdarinnar þann 4. maí en það náðist ekki vegna verulegs umfangs gagna. Markmiðið er að ljúka lögformlegri meðferð stofnunarinnar eins fljótt og kostur er, án þess að draga úr gæðum eða réttaröryggi og að álitsgerð HMS um mat á umhverfisáhrifum Sundabrautar liggi fyrir síðar í þessum mánuði,“ segir að lokum.
Reykjavík Vegagerð Jarðgöng á Íslandi Sundabraut Skipulagsmál Samgöngumál Umhverfismál Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Inga segir já Innlent Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Erlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Nei-sinnar fleiri í fyrsta sinn Sjá meira