„Hæð og þyngd er ekki allt í fótbolta“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 17. maí 2026 21:21 Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, hugsi á hliðarlínunni í kvöld. Vísir/Diego Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, segir að jafntefli hafi líklega verið sanngjörn niðurstaða þegar liðið tók á móti Fram í 7. umferð Bestu-deildar karla í kvöld. „
Ég held að það sé alveg hægt að segja það að jafntefli hafi verið sæmilega sanngjörn úrslit,“ sagði Óskar í leikslok. „Auðvitað þegar þú ert kominn í þessa stöðu sem við vorum komnir í að þá ertu farinn að sjá glitta í sigurinn, en að mörgu leyti var þetta mjög áhugaverður leikur. Leikur tveggja mjög ólíkra leikstíla og hugmyndafræða. Þetta var mjög skemmtilegur leikur þar sem Framararnir spurðu okkur mjög margra spurninga og við vorum undirbúnir undir það,“ bætti Óskar við og hélt áfram. „Við erum örugglega með minnsta liðið sem hefur spilað í deildinni síðan guð má vita hvenær og þeir með eitt það stærsta og úr varð áhugaverð skák. Mér fannst margt hjá okkur mjög gott, en við hefðum mögulega getað tekið aðeins betri ákvarðanir á síðasta þriðjungi. En framlag leikmanna og hugrekki var til fyrirmyndar og ég er bara mjög sáttur.“ Eftir tap KR gegn Stjörnunni í bikarnum í miðri viku talaði Óskar einmitt um að liðinu hefði skort hugrekki. Hann segir það hins vegar hafa verið til staða í kvöld. „Engin spurning. Stjörnuleikurinn var að mörgu leyti sérstakur. Þar voru lið að mætast í annað skipti á fimm dögum og annað liðið var komið gjörsamlega með bakið upp við vegginn. Það sást í þeim leik. Þeir gáfu meira í þann leik heldur en leikinn á undan, vörðu markið sitt betur og teiginn sinn betur. Hann var tvíþættur. Ég ætla ekki að taka neitt af Stjörnumönnum í þeim leik, það var ekki það að við höfum verið svo lélegir. Þeir vörðu teiginn sinn bara frábærlega síðasta hálftíman.“ „En ég sakanði enn þá meiri orku, sérstaklega orkunnar. En í dag fannst mér við vera flottir að því leytinu til. Mér fannst við ná að eiga ágætlega við þessar fjórtánhundruð löngu sendingar sem Viktor sendi upp á stóru mennina þeirra. Heilt yfir fannst mér við ráða vel við það.“ Þá segist hann vera gríðarlega sáttur við stigasöfnun liðsins hingað til, þrátt fyrir töpuð stig í kvöld. „Ég held að ef þú hefðir sagt mér fyrir mót að við yrðum með 19 stig eftir sjö leiki og markatöluna 27-13, ef þú hefðir boðið mér það þá hefði ég að öllum líkindum tekið því hratt og örugglega áður en þú myndir skipta um skoðun. En það er ekki hægt að horfa á þetta þannig. Ef þú horfir bara á þetta sem einstakan leik og horfir á að við höfum verið á einhverri sex leikja sigurgöngu í deildinni. Mér finnst ekki rétt að horfa á það þannig.“ „Við vorum að spila á móti gríðarlega góðu liði, liði sem er í þriðja sæti í deildinni, líkamlega sterku og öflugu liði. Það var svo margt í þessum leik sem ég held að eigi eftir að hjálpa okkur í næstu leikjum. Við fórum í grimma yfirtölu á vinstri vængnum en við höfum aðeins gefið eftir þar. að þora að vera margir á sama svæðinu og halda boltanum með stuttum sendingum, sem er einn af styrkleikum okkar. Ég held að menn hafi aðeins fundið kjarnan aftur í því,“ sagði Óskar, en hafði ekki lokið sér af. „Við spilum án margra lykilmanna. Það eru kannski ekkert margir sem hefðu trúað því að við myndum lifa af á móti Fram án Finns, Ástbjörns og Arnórs Ingva svo nokkrir séu nefndir. Leikmenn eru að koma inn og stíga upp, sem er frábært, því við erum ekki með stóran hóp og við þurfum alla menn á dekk.“ „Það er miklu meira jákvætt heldur en neikvætt fyrir okkur í þessum leik og við erum þarna með Víkingum núna á toppnum. Svo er það bara Breiðablik á föstudaginn.“ Að lokum segir Óskar að hann hafi fengið svör við ýmsum spurningum í þessum leik. „Já, ég myndi segja það. Þegar þú horfir á föstu leikatriðin og hvernig Framarar eru. Það leyt kannski ekkert frábærlega vel út að Orri Hrafn væri að dekka Kennie Chopart og Krummi væri að dekka Sigurjón Rúnarsson. Ég veit að við fengum á okkur mark undir lokin úr hornspyrnu, en í grunninn fannst mér menn leysa það frábærlega. Það sýnir það að hæð og þyngd er ekki allt í fótbolta. Það eru aðrar íþróttir sem snúast meira um það. Ég var ánægður með það og mér fannst við eiga vel við löngu boltana.“ „Heilt yfir gáfum við ekki mörg færi á okkur eða á bakvið okkur þó við stæðum hátt. Það var af því að pressan hjá okkur var góð og ég var ánægður með það og þetta var bara góður leikur tveggja góðra liða. Ekkert meira um það að segja,“ sagði Óskar að lokum.
Íslenski boltinn Besta deild karla KR Fram Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Fleiri fréttir Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Leik lokið: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjá meira