Sport

„Halda að við séum í ein­hverju stríði en hann er minn maður“

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Dedrick Basile í baráttu við Deandre Kane.
Dedrick Basile í baráttu við Deandre Kane. Anton Brink/Vísir

Tindastóll eru ekki dauðir úr öllum æðum og sóttu gríðarlega mikilvægan sigur í leik þrjú í úrslitaeinvíginu í Grindavík. Með bakið upp við vegg og 2-o undir náði Tindastóll að tryggja sér fjórða leikinn með fimm stiga sigri 89-94. Dedrick Basile ræddi við Andra Már Eggertsson eftir leik í kvöld.

„Við vorum í þessari stöðu í síðasta einvígi að vera undir 2-0 og við vissum að Grindavík vildi vera með partý í kvöld en mitt lið mætti til leiks eins og það væri enginn morgundagur“ sagði Dedrick Basile eftir sigurinn í kvöld.

„Ef við höldum áfram að spila svona þá finnst mér við eiga góða möguleika á endurkomu“

Leikurinn var fram og til baka og skiptust liðin tuttugu sinnum á forystu í fyrri hálfleik.

„Grindavík er mjög gott lið og þess vegna eru þeir deildarmeistarar. Þeir eru með frábæra leikmenn, gott lið og góða rulluspilara“

„Deandre Kane og Jeremy Pargo eru Euroleague leikmenn og við urðum bara að mæta hingað og berjast. Við vissum að þetta yrði barátta alveg sama hvað“

Tindastóll átti frábæran fjórða leikhluta og héldu Grindvíkingum stigalausum í sex mínútur.

„Ég vissi það ekki einu sinni en það er bara flott. Við einbeitum okkur að vörninni og þeir eru með góða einn á einn leikmenn en ef við spilum okkar leik þá trúi ég því að við getum tekið einn leik í einu og átt endurkomu“

Dedrick Basile og Deandre Kane hafa átt mikla baráttu í þessu einvígi.

„Hann er stóri bróðir, ég lærði mikið af honum. Það halda margir að við séum í einhverju stríði en hann er minn maður og þetta er eins og það er“

Dedrick Basile hefur oft áður verið í silfurliði og þráir hann að ná loksins gullinu.

„Mig langar rosalega í gullið, alveg svakalega“ sagði Dedrick Basile við Andra Már Eggertsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×