Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson og Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifa 15. maí 2026 11:53 Fatlað fólk er háð því að aðgengi að samgöngum og innviðum sé gott. Ekki síst er mikilvægt að hreyfihamlað fólk geti lagt bílum sínum sem næst áfangastað, og sökum þess er fólk með P-merki undanþegið greiðsluskyldu í öllum gjaldskyldum stæðum. Samt fær það ítrekað sektir, sem er bæði óþarft og ólíðandi. Mikilvæg réttindi í daglegu lífi Við þekkjum öll bláa P-merkið sem liggur í mælaborði bíla í sérmerktum stæðum fyrir hreyfihamlað fólk. Stæðin eiga að vera staðsett sem næst aðalinngangi bygginga, þjónustustofnana, verslana og í raun allra þeirra staða sem almenningur fer um. Ítarlegar kröfur eru gerðar til hönnunar og útfærslu stæðanna, sem meðal annars miða að hindrunarlausu aðgengi alla leið frá bílastæðunum að inngangi bygginganna. Færri vita hins vegar að handhafar P-merkja eru undanþegnir greiðsluskyldu í öllum gjaldskyldum stæðum, hvort sem þau eru á vegum hins opinbera eða einkaaðila. Undanþágan er ekki bundin við sérmerkt stæði fyrir hreyfihamlaða, heldur gildir hún einnig um almenn bílastæði. Fatlað fólk er í raun hvatt til að nýta sér þau þegar kostur er. Samkvæmt lögum er því óheimilt að sekta fatlað fólk fyrir að leggja í gjaldskyld stæði, og frá því eru engar undanþágur. Reglan á við um öll gjaldskyld stæði á yfirborði, í bílastæðahúsum og bílakjöllurum. Gildir þá einu hvort stæðin eru á forræði opinberra aðila eða einkarekinna bílastæðafyrirtækja, sem oft reynast treg í taumi við að fella sektirnar niður. Engin ástæða til að gera fólki erfitt fyrir Samt gerist það ítrekað að fatlað fólk fái sekt fyrir að leggja í gjaldskyld bílastæði. Oft er vandamálið að myndavélar sjá um skráningu ökutækisins, en fjölmörg dæmi eru einnig um að fólk sé sektað við venjulegt eftirlit bílastæðavarða. Eitt skýrasta dæmið er Isavia, opinbert hlutafélag í eigu ríkisins, sem var tekið eftirminnilega fyrir í áramótaskaupinu. Félagið gefur hreyfihömluðu fólki heilar fimm mínútur til að stöðva bílinn, koma sér út og taka út farangur áður en mælirinn byrjar að tikka. Fimm mínútur eru augljóslega ekki nægur tími fyrir fólk í hjólastól, og því er full ástæða til að gera betur. Handhafar P-merkja þurfa ítrekað að eyða tíma sínum í að hafa samband við þá sem sjá um bílastæðin og fá sektirnar felldar niður. Það krefst oft mikillar fyrirhafnar þar sem erfitt getur reynst að ná sambandi og stundum er lítið um svör. Í sumum tilfellum er auðveldast að borga bara sektina og sleppa þannig við vesenið. Sem er algjörlega óásættanlegt. Tími til kominn að finna góða lausn Vandamálið felst í því að P-merkin eru ekki tengd við neina gagnagrunna eða greiðslukerfi. Eina lausnin sem í boði er í dag er að viðkomandi einstaklingur tilkynni komu sína eða skrái bílinn í hvert skipti sem honum er lagt. Þetta hlýtur að mega leysa á einfaldari hátt. Besta lausnin væri sameiginlegur gagnagrunnur með upplýsingum um handhafa stæðiskorta, sem allir þeir aðilar sem sjá um gjaldskyld bílastæði gætu nýtt sér. Að sjálfsögðu þyrfti að huga vel að persónuverndarsjónarmiðum, en það hlýtur að vera hægt með tækni dagsins í dag. Skráning í gagnagrunninn yrði eingöngu gerð með samþykki viðkomandi, en augljóst er að þessi notkun upplýsinganna væri fötluðu fólki í hag. Bílastæðasjóður í Reykjavík er einn fárra aðila sem býður upp á skráningu til lengri tíma við reglulega notkun, en það á þó einungis við um stæði í bílahúsum borgarinnar. Handhafar stæðiskorta geta nú sent póst til sjóðsins með upplýsingum um bílnúmer, kortnúmer og gildistíma og það eða þau bílahús sem viðkomandi notar. Skráningin gildir í eitt ár eða sem nemur gildistíma kortsins. Þetta er ágæt þjónusta, og hún bendir einnig til þess að hægt sé að þróa stafrænar lausnir sem myndu leysa þetta hvimleiða vandamál. Ríki og sveitarfélög bera stóran hluta ábyrgðarinnar Sveitarfélögin geta hér tekið mikilvægt frumkvæði. Þeim ber nú þegar að tryggja að skipulag og framkvæmdir uppfylli allar þær kröfur sem gerðar eru varðandi aðgengi og bílastæði fyrir fatlað fólk, bæði hvað varðar fjölda og útfærslu. Jafnframt er stór hluti gjaldskyldra bílastæða á landinu á þeirra vegum. Við hvetjum sveitarfélögin því til þess að bregðast við og finna lausn á þessu vandamáli. Gjarnan í góðri samvinnu við löggjafann, sem setti lögin en hefur ekkert gert til að tryggja að þeim sé framfylgt. Það er ekki nóg að tryggja réttindi fatlaðs fólks á pappír, þeim þarf að framfylgja í raun. Það er von okkar að lausnin finnist sem fyrst. Bergur Þorri er varaformaður Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu og Þuríður Harpa er formaður Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Málefni fatlaðs fólks Bílastæði Mest lesið Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar