Carrick eigi skilið að fá starfið Aron Guðmundsson skrifar 13. maí 2026 16:30 Rætt var um framtíð Michael Carrick og Manchester United í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport á dögunum Aron Jóhannsson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta, segir Michael Carrick eiga skilið að vera ráðinn knattspyrnustjóri Manchester United til frambúðar.
Carrick var ráðinn bráðabirgðastjóri Manchester United út yfirstandandi tímabil eftir að leiðir félagsins og Ruben Amorim skildu. Englendingurinn hefur gert mjög góða hluti með liðið. Undir stjórn Carrick hefur Manchester United tryggt sér Meistaradeildarsæti og vermir þriðja sæti deildarinnar. Nú þegar dregur nær lokum tímabilsins er uppi mikil umræða um það hvort Carrick, sem spilaði á sínum tíma með Manchester United, eigi að fá starfið til frambúðar. Klippa: Af hverju ekki Carrick? „Ég er alveg búinn að dansa við þessa spurningu núna í nokkra mánuði. Ég er alveg á því núna að hann eigi skilið að fá starfið,“ sagði Aron Jóhannsson í Sunnudagsmeessunni á Sýn Sport. Aðeins Luis Enrique, þjálfari Paris Saint-Germain, væri ofar á lista hjá Aroni en Carrick færi svo að Spánverjinn yrði á lausu. „Ef Enrique vinnur Meistaradeildina aftur með PSG. Verður hann þá sáttur og hugsar með sér að ganga frá borði þar núna? Það er sennilega eini þjálfarinn sem ég myndi taka ef hann yrði á lausu.“ Aron sér það ekki að þjálfarar á borð við Andre Iraola og Marco Silva sem hafa verið orðaðir við starfið séu að fara gera betri hluti en Carrick með Manchester United. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, einnig sérfræðingur Sunnudagsmessunnar, hefur séð þætti við leik Manchester United sem hún saknaði koma inn með Carrick. „Leikmenn vilja spila fyrir hann og stuðningsmennirnir eru einvhern veginn að grípa hann. Carrick hefur gert það sem hægt er að gera á þessum stutta tíma fyrir Manchester United.“ Þykir líklegastur þessa stundina Fyrr í dag var greindi The Athletic frá því að stjórnendur innan Manchester United væru á því að Carrick væri rétti maðurinn til þess að stýra Manchester United á næsta tímabili. Á sama tíma segir Sky Sports að formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf muni hefjast milli forráðamanna Manchester United og umboðsmanna Carrick eftir lokaleik liðsins gegn Brighton þann 24.maí. Segir Sky Sports að ekki sé búið að útiloka möguleikann á því að annar stjóri taki við á Old Trafford en að Carrick sé maðurinn sem stjórnendur félagsins vilji ræða fyrst við. Umræðuna um Michael Carrick og Manchester United úr Sunnudagsmessunni má sjá hér fyrir ofan í spilaranum.
Enski boltinn Manchester United Messan Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira