„Þarft ekki að vera eins fullkominn og samfélagsmiðlarnir segja þér“ Valur Páll Eiríksson skrifar 8. maí 2026 19:32 Magnús Jóhann Hjartarson er klár í Bakgarðinn. Vísir/Anton Borðtenniskappi stefnir á að hlaupa 160 kílómetra í bakgarðshlaupinu sem fram fer í Öskjuhlíð um helgina. Hann mun njóta þjáningarinnar á hlaupum í sólarhring.
Það er eðlilega mikil eftirvænting fyrir hinu árlega Bakgarðshlaupi sem fer fram í Öskjuhlíðinni um helgina og hefst í fyrramálið. Á meðal keppenda er borðtenniskappinn Magnús Jóhann sem smitaðist af hlaupabakteríunni. „Ég datt í smá hlaup síðasta sumar, tók Laugaveginn og Bakgarðinn, 100 kílómetra þar, en er með grunn í borðtennis og hef verið að lyfta mikið. Hlaup eru ekki mín sérgrein en ég er orðinn frekar góðir á stuttum tíma,“ segir Magnús í Sportpakkanum á Sýn. En hvernig komstu inn í hlaupin? „Aðallega út af forvitni. Mig langaði að sjá hversu langt ég gæti hlaupið og hversu langt ég gæti farið. Núna er ég að sjá hversu langt ég get hlaupið og sjá hvað líkaminn og svefnleysið fer í mann. Þetta er aðallega áskorun og maður hefur gaman af því,“ Magnús kveðst þó óviss hvað hann endist í hlaupunum. „Ég hef líka geðveikt gaman að borðtennis. Það er líka skemmtilegt og ég veit ekki hvað ég verð lengi í því. Þetta kemur bara í ljós.“ Hleypur fyrir Bergið Magnús hleypur fyrir og safnar styrkjum fyrir Bergið Headspace, sem stuðlar að geðheilbrigði ungs fólks. Það er málefni sem stendur honum nærri. „Það kom aðallega útfrá eigin reynslu. Að hafa verið unglingur og krakki, áttavilltur að setja tíma í djamm og einhverja vitleysu. Svo þroskast maður með tímanum og vinnur aðeins í sjálfum sér,“ „Mig langar að sýna krökkum að þú þarft ekki alltaf að vera eins fullkominn og samfélagsmiðlarnir segja þér. Það ströggla alltaf einhverjir einhvern tímann í lífinu, sérstaklega þegar þú ert ungur. Bergið vinnur geggjað starf,“ segir Magnús. Hvert er markmiðið fyrir hlaupið? „Eiginlega ætla ég að hlaupa þar til ég get ekki meira. Fyrst og fremst er að ná þessum 160 kílómetrum, það er fyrsta markmið en ég held mjög laust í það.“ Þetta verða bara kósý 24 tímar hjá þér á hlaupum? „Já, nákvæmlega. Njóta þess, já, ég elska þjáningu, alveg geðveikt,“ segir Magnús og hlær. Viðtalið má nálgast í spilaranum.
Bakgarðshlaup Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira