Sköpum samfélag í Garðabæ þar sem við erum öll velkomin Harpa Grétarsdóttir skrifar 8. maí 2026 10:00 Hver þekkir ekki tilfinninguna þegar vor er í lofti og við sjáum fólk flykkjast út; til að leika sér, ganga, hlaupa, sparka bolta, dytta að garðinum eða bílnum. Það er viss vellíðan sem fylgir því að sjá fólk og finnast þú tilheyra samfélagi. Það er einfalt að ýta undir þessa tilfinningu í Garðabæ með því að skapa markvisst staði, rými og aðstæður sem kalla á okkur að fara út að njóta, sýna okkur og sjá aðra. Bókasöfn eru að mínu mati með mikilvægari almenningsrýmum sem finnast. Bókasöfn sækja fólk á öllum aldri í ýmsum tilgangi. Mörg hver mæta á bókasafnið til að sækja sér bækur. Eðlilega, það er þeirra grunntilgangur - en bókasöfn eru orðin svo mikið meira. Þau eru orðin athvarf; vettvangur fræðslu, hittinga, handavinnuhópa, föndursmiðja, og samverustaður fjölskyldna. Ávallt með bækur í forgrunni sem er verðmætt í heimi þar sem það er mikilvægara en nokkru sinni að standa vörð um lestur og lesskilning. Bókasöfn eru staður þar sem ekki er ætlast til þess af fólki að það taki upp veskið og borgi fyrir veru sína og þannig ýta þau undir jöfnuð og inngildingu. Við finnum ákall eftir því að bókasafnið í Garðabæ eigi að vera opið á sunnudögum og viljum svara því. Sundlaugar eru frábær heilsubót og staður til að hitta fólk, enda er íslensk sundlaugamenning á heimsminjaskrá UNESCO. Þessa gjöf sem eldfjallaeyjan okkar hefur gefið okkur ætti ekki að vanmeta og auðvitað á að vera opið í sundi á kvöldin alla daga vikunnar. Gangstéttar og stígar eru veigamikill þáttur í bænum en stéttarnar þarfnast viðhalds og uppbyggingar. Það er gríðarlega mikilvægt að við getum öll komist farið á milli staða, sama hvaða ferðamáta við kjósum. Gangandi, í hjólastól eða á línuskautum þurfum við öll að vera örugg. Það er hagsmunamál allra að geta komist leiðar sinnar og stundað á heilsubót sem útivist er. Þá er löngu orðið tímabært að gerður sé göngustígur kringum Arnarnesið. Bæjarhátíðir á borð við okkar frábæru djasshátíð sem hefur sýnt og sannað að ákall er eftir skemmtilegum viðburðum. Í nýrri menningarmiðju er hægt að gera allri menningu hátt undir höfði, leyfa grasrótinni að vaxa og dafna, börn geta fengið sótt sínar eigin hátíðir og fjölnotarými ýta undir sköpun og gróskumikla menningu. Leikvellir og græn svæði innan bæjarmarka efla heilsurækt og gera Garðabæ að ákjósanlegum stað til að búa, með lýðheilsu að leiðarljósi. Með því að skapa samfélagsrými og tækifæri til að hitta fólk erum við búin að leggja grunn að góðu samfélagi þar sem öll eru velkomin. Höfundur er í 6. sæti Garðabæjarlistans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Garðabær Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar