Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Freyja Þórisdóttir skrifar 7. maí 2026 20:34 Hantaveira smitast yfirleitt í menn sem anda að sér gufum frá hægðum smitaðra nagdýra. Það afbrigði veirunnar sem fólkið hefur smitast af smitast sjaldan manna á milli og segja sérfræðingar að mikla nánd þurfi til. AP Hantaveirusmit sem upp kom um borð í skemmtiferðaskipinu MV Hondius er ekki upphaf heimsfaraldurs, að sögn heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Heilbrigðisyfirvöld keppast nú við að rekja slóð fjölda fólks sem nýlega fór frá borði úr hollenska skipinu. Alls hafa þrír dáið vegna veirunnar og er talið að að minnsta kosti átta til viðbótar hafi smitast.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í frétt BBC en þar er haft eftir Mariu van Kerkhove, sóttvarnalækni hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO), að „ástandið sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19, þar sem hantaveira smitast með náinni snertingu“. Á fréttamannafundi í dag sagði hún einnig: „Þetta er ekki Covid, þetta er ekki inflúensa, þetta smitast á allt annan hátt.“ Rekja ferðir þeirra sem fóru frá borði Heilbrigðisyfirvöld keppast nú við að rekja slóð fjölda fólks sem nýlega fór frá borði úr hollenska skipinu MV Hondius. Í frétt BBC er haft eftir hollenskum yfirvöldum að konan sem lést í kjölfar þess að hafa farið úr skemmtiferðaskipinu þann 24. apríl hafi farið um borð í KLM-flug á leið frá Jóhannesarborg til Hollands, en veikst fyrir brottför. Yfirvöld í Hollandi senda nú bréf til farþega sem voru í fluginu og biðja þá um að vera „tiltækir til eftirlits“. Það er enn óljóst hve margir fóru frá borði en hollenska fyrirtækið sem gerir skemmtiferðaskipið út segir þá tuttugu og níu. Yfirvöld í Hollandi hafa aftur á móti sagt um fjörutíu, samkvæmt AP fréttaveitunni. Alls hafa þrír dáið vegna veirunnar og er talið að að minnsta kosti átta til viðbótar hafi smitast. Skipinu er nú siglt í átt að Kanaríeyjum, þar sem stendur til að flytja fólkið frá borði og til heimaríkja sinna. Sjá einnig: Vilja ekki fá hantaveiruskipið til Kanaríeyja Lúxussiglingin, sem er á vegum Oceanwide Expeditions, hóf ferð sína 1. apríl í Ushuaia í Argentínu og er áætluð koma þess til Kanaríeyja næsta sunnudag, þann 10. maí. Um 150 farþegar og áhöfn frá 28 löndum eru sagðir hafa verið um borð í skipinu í upphafi. Fleiri með einkenni Á sama fréttamannafundi sagði Tedros Ghebreyesus, framkvæmdastjóri WHO, að stofnunin „meti lýðheilsuáhættuna litla“. Hann sagði að fyrstu tveir einstaklingarnir sem voru með staðfesta veirusýkingu hefðu „ferðast um Argentínu, Chile og Úrúgvæ í fuglaskoðunarferð sem innihélt heimsóknir á staði þar sem rottutegundin sem vitað er að ber veiruna var til staðar“. Þá tók hann einnig fram á fundinum að WHO væri kunnugt um fregnir af öðru fólki með einkenni sem gætu hafa verið í snertingu við farþega og bætti við að embættismenn væru í sambandi við viðkomandi yfirvöld. „Miðað við meðgöngutíma þessa sjúkdóms, sem getur verið allt að sex vikur, væri mögulegt að fleiri tilfelli yrðu tilkynnt“, sagði hann að lokum.
Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Holland Spánn Kanaríeyjar Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira