„Þetta er flókin staða“ Aron Guðmundsson skrifar 7. maí 2026 14:01 Freyr Alexandersson, þjálfari Brann og leikmaður liðsins, Jón Dagur Þorsteinsson Vísir/Samsett Freyr Alexandersson segir framtíð íslenska landsliðsmannsins Jóns Dags Þorsteinssonar hjá Brann koma í ljós undir lok þessa mánaðar. Hann telur umræðuna um Íslendinginn hafa verið óvægna. Jón eigi meira inni en geti haft úrslitaáhrif í bikarúrslitaleik á laugardaginn.
Jón Dagur er á láni hjá Brann frá Herthu Berlin í Þýskalandi og spilar undir stjórn Freysa hjá norska liðinu. Miklar væntingar voru gerðar til íslenska landsliðsmannsins og fékk hann á sig mikla gagnrýni í upphafi tímabils. Freyr segir umræðuna í kringum leikmanninn örugglega hafa verið óvægna. Jón Dagur sé hins vegar alls ekki búinn að vera slakur með Brann. „Alls ekki. Jón Dagur er búinn að vera mjög góður síðustu fjóra leiki. Í byrjun var hann nokkuð góður miðað við að hann þurfti að komast í takt aftur. Hann var ekki í leikæfingu og þurfti að komast inn í okkar leikstíl sem er alveg krefjandi. Ég er nokkuð sáttur við hann en að sama skapi þá snýst þetta alltaf um væntingar í fótboltanum. Hans eigin væntingar, væntingar umhverfisins til hans. Jón Dagur á meira inni. Samt sem áður vil ég aldrei segja að ég sé ósáttur við hans frammistöðu. Þvert á móti.“ Jón Dagur verði betri með hverjum leiknum sem hann spilar í treyju Brann og á laugardaginn kemur, í úrslitaleik gegn Bodø/Glimt í norska bikarnum, geti hann haft úrslitaáhrif. „Hann sýnir í hverjum einasta leik há gæði. Það væri bara frábært að fá þétta frammistöðu frá honum á laugardaginn í níutíu mínútur. Hann gæti verið leikmaður sem væri verið afgerandi fyrir okkur.“ Eins og fyrr sagði er Jón Dagur á láni hjá Brann frá þýska B-deildar liðinu Herthu Berlin þar sem mínúturnar innan vallar höfðu verið af skornum skammti. Lánssamningur hans rennur út í næsta mánuði en möguleiki er á því að hann gangi endanlega í raðir Brann. „Það er alveg möguleiki. Þetta er flókin staða. Jón Dagur er með langan samning hjá Herthu Berlin. Við erum mjög ánægðir með hann. Honum líður vel, spilar vel og er frábær liðsmaður. Við sjáum síðan hvað setur í sumar. Ég og Jón tókum bara þá ákvörðun fyrir nokkrum vikum síðan að einblína á að æfa vel, spila vel og njóta þess að vera hérna. Það væri svo bara yfirmaður knattspyrnumála hjá Brann og umboðsmennirnir sem reyna að finna flöt á hinum málunum. Þetta kemur í ljós í lok þessa mánaðar.“ Nánar verður rætt við Frey Alexandersson um úrslitaleikinn gegn Bodø/Glimt í norska bikarnum á laugardaginn í Sportpakkanum á Sýn í kvöld að loknum kvöldfréttum.
Norski boltinn Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Fleiri fréttir Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Sjá meira