„Ég var nú bara að grínast!“ Kristján Freyr Halldórsson skrifar 5. maí 2026 12:47 Nú er ég mikill áhangandi góðs gríns og kann vel að meta þegar fólk kann að grínast. En grín er ekkert djók! Mér finnst fólk ekki taka gríni nægilega alvarlega og hendi bara fram sisona setningunni „Ég var bara að grínast!“ til þess að afsaka gjörðir eða asnaleg ummæli sín. Á dögunum kýldi pirraður þjálfari á Hlíðarenda annan mann í þindina en faldi sig á bak við „góðlátlegt grín“. Hvenær væri þetta fyndið grín? Sagði þjálfarinn leikmanninum að hann væri með hnúafar í peysunni og kýldi svo? Eða spurði hann drenginn hvort hann hafi verið að borða pylsu því það væri sinnep í treyjunni?Og nú líður senn að kosningum, þá finnst mér eins og það sé nánast í tísku að vera einhvers lags gerpi. Það virðist bara normalíserað að fólk geti gefið út ægilegar yfirlýsingar, stundum andstyggileg ummæli, farið með kolrangt mál, ráðist á minnihlutahópa, kýlt fólk í þindina … en þóst svo geta fundið sér undankomuleið með að segja bara „Ég var nú bara með góðlátlegt grín“. Fyrir utan það augljósa, að sýna ekki almenna mannvirðingu, þá finnst mér með þessum hætti gríðarleg óvirðing sýnd gagnvart góðu gríni.Ég geri mér grein fyrir því að frambjóðendur horfa fram á mikla málefnaþurrð og það þarf því að kasta einhverju fram til þess að brjótast upp úr þvögunni. Það þarf vitanlega að búa til einhvern loforðaflaum um bætt kjör og aðstæður til alls og sýna fram á að allt sem miður fer í nærumhverfinu nú, hafa frambjóðendur allt í einu allar lausnir í höndum sér. Borgarlínur og bílastæðamál sjá loks fram á vænlega úrlausn, jarðgöngin spretta upp um allt land, fjölmargar virkjanir og fjölnota íþróttahús. Loks verða umferðarljós í borginni snjallstýrð en ekki af Degi B. Eggertssyni.Ég hef svo sem ekki gert upp hug minn í komandi kosningum en ég er í raun til í þetta allt ofangreint … nema bara ekki vera gerpi! Það er bara ekki lengur töff. Að ráðast á fólk í froðufullum popúlisma er ekki töff. Mér finnst miklu meira töff þegar fólk sýnir samkennd og heldur með fólki. Fólki sem vill fá að vera það sem það er og fólki sem er bara að reyna að plumma sig í lífinu. Sýnum samkennd, það gerir lífið betra! Og svo bara í Guðs bænum berið virðingu fyrir góðu gríni. Ef þið ætlið að fela gjörðir ykkar með góðlátlegu gríni, hafið þá grínið að minnsta kosti fyndið. „Vá, sástu kindina?“ og kýldu hann svo í þindina … eða bara alls ekki. Höfundur er trommari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar