Hvers vegna spyr RÚV ekki um loftslagsmálin? Davíð Arnar Stefánsson skrifar 4. maí 2026 13:03 Það er skemmtilegur og jafnvel gagnlegur samkvæmisleikur fyrir kjósendur að taka kosningapróf. Það þekkja allir hvernig þetta virkar – fólk svarar fáeinum spurningum, bæði almennum stjórnmálaspurningum og eins og spurningum sem snúa að þínu sveitarfélagi. Niðurstöðurnar sýna hvaða frambjóðendum fólk getur mátað sig við en áður hafa frambjóðendur svarað sama prófi. Og líkt og áður býður RÚV nú upp á kosningapróf fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Ég er frambjóðandi á lista flokks sem býður fram til sveitarstjórnarkosninga. Ég svaraði spurningunum samkvæmt bestu vitund líkt og aðrir frambjóðendur, geri ég ráð fyrir, enda tek ég prófið alvarlega. Með því móti geti kjósendur kynnst hugmyndum mínum og flokks míns um helstu mál áður en þeir gera upp hug sinn í kjörklefanum. Á einum stað í prófinu er spurt hver séu mikilvægustu kosningamálin og gefinn kostur á því að velja þrjú mál af lista fjórtán mála sem öll varða sveitarfélögin: samgöngur, atvinnumál, húsnæðismál o.s.frv. Sannarlega allt mikilvæg mál. Það vakti hins vegar athygli mína að loftslagsmálin voru ekki talin upp á listanum. Raunar er hvergi minnst á loftslagsmálin í prófinu. Rétt eins og þau hafi verið leyst eða þau komi sveitarfélögunum hreinlega ekki við. Það vekur auðvitað furðu enda hlýnun loftslags ein stærsta sameiginlega áskorun mannkyns. Engin þjóð í veröldinni kemst hjá því að verða fyrir afleiðingum hennar og engin ábyrg þjóð kemst hjá því að sporna við hlýnuninni með aðgerðum. Þar gegna sveitarfélögin lykilhlutverki og þau þurfa að leita allra leiða til að minnka losun gróðurhúsaloftegunda frá samfélaginu, auka bindingu þeirra í jarðvegi og gróðri með vernd náttúru og bættri landnýtingu – landgræðslu og skógrækt. Það er áberandi hve loftslagsmálin eru neðarlega á lista eða hreinlega ekki nefnd á nafn í tali frambjóðenda eða á málefnaskrá flokkanna. Rétt eins og loftslagsvandinn komi sveitarfélögunum ekki við eða vandinn sé leystur. Því fer fjarri og auðvitað eiga frambjóðendur að gera grein fyrir sínum áherslum í málaflokknum. Kjósendur eiga rétt á að vita hvar tilvonandi sveitarstjórnarfulltrúar standa þegar kemur að loftslagsmálunum og loftslagsaðgerðum og hvort þeir og sveitarfélagið þeirra muni axli sína ábyrgð og geri sitt til að sporna við vandanum. Og RÚV á vitanlega að spyrja að þessu f.h. íbúa. Annað er tímaskekkja og ábyrgðalaust. Höfundur situr í 3ja sæti á lista Vinstrisins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Arnar Stefánsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar