Hafnarfjörður í sókn Árni Rúnar Árnason skrifar 4. maí 2026 10:18 Það er í daglegu lífi bæjarbúa sem árangur góðrar stjórnunar bæjarins sést best. Í greiðfærum götum, snyrtilegu umhverfi, öflugri íþróttaaðstöðu, góðum sundlaugum og fallegum svæðum þar sem fólk kemur saman. Snjómokstur hefur gengið vel á þessu kjörtímabili. Það skiptir máli að fólk komist leiðar sinnar, að þjónusta bæjarins virki og að grunninnviðir séu í lagi. Sama á við um almennt viðhald og umhirðu. Göturnar eru snyrtilegar, miðbærinn er sópaður vikulega og önnur hverfi eftir þörfum. Þetta eru kannski ekki alltaf stærstu málin í umræðunni, en þau hafa mikil áhrif á daglegt líf bæjarbúa. Meiri lífsgæði, betri aðstaða og fallegri bær Uppbygging íþróttastarfs í Hafnarfirði hefur verið öflug og fjölbreytt. Nýtt knattspyrnuhús Hauka á Ásvöllum hefur bætt aðstöðu til muna, ný reiðhöll Sörla styrkir starfsemi hestafólks og aðstaða fyrir hnefaleika hefur verið bætt verulega. Þá hefur skapast frábær aðstaða fyrir Brettafélagið sem nýtist ungu fólki sérstaklega vel. Þessar framkvæmdir skipta máli vegna þess að þær skapa fleiri tækifæri fyrir börn og ungmenni til að finna sig í íþróttum, hreyfingu og heilbrigðu félagsstarfi. Sundlaugarnar okkar njóta einnig mikilla vinsælda og ásókn hefur aukist um 10 til 30% eftir laugum. Í Suðurbæjarlaug hefur skapast frábær aðstaða til að rækta bæði sál og líkama og fram undan eru spennandi verkefni. Þar má nefna stækkun Ásvallalaugar og nýtt útisvæði við Sundhöll Hafnarfjarðar sem mun lyfta þjónustunni enn frekar. Sundlaugarnar eru hluti af menningu okkar, heilsu og samfélagi. Fegrun bæjarins hefur sömuleiðis verið í forgangi. Sett hefur verið upp mikið magn sumarblóma og unnið markvisst að endurbótum á svæðum á borð við Hellisgerði. Þar hafa orðið miklar framfarir og svæðið er orðið enn meira aðdráttarafl fyrir bæjarbúa og gesti. Það skiptir máli að bærinn okkar sé fallegur, vel hirtur og aðlaðandi. Það eykur stolt íbúa og gerir Hafnarfjörð enn betri heimabæ. Allt þetta gerist ekki af sjálfu sér. Þetta eru niðurstöður skýrrar forystu, ábyrgra ákvarðana og markvissrar forgangsröðunar. Við höfum lagt áherslu á að þjónustan virki, að innviðirnir séu sterkir og að bæjarbúar finni fyrir framförum í sínu nærumhverfi. Við viljum halda áfram á þessari braut. Með ábyrgð, metnaði og skýrri sýn tryggjum við að Hafnarfjörður verði áfram framúrskarandi samfélag fyrir alla íbúa. Þetta snýst um Hafnarfjörð, bæinn okkar, lífsgæðin okkar og framtíðina sem við byggjum saman. Höfundur skipar þriðja sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar