Byrgjum brunninn í stað þess að byggja brunna Bryndís Rut Logadóttir skrifar 3. maí 2026 08:02 Að útrýma biðlistum virðist vera vinsælt kosningaloforð þegar kemur að málefnum aldraðra. En sjaldan er talað um það hvernig við ætlum að fara að því að útrýma biðlistum og hvaða biðlistar það eru helst sem þarf að útrýma. Hvernig útrýmum við biðlistum? Það er aldrei gaman að heyra að það séu biðlistar í þjónustu sem fólk þarf á að halda en við þurfum að átta okkur á því á hvorum endanum við ætlum að byrja. Biðlistar inn á hjúkrunarheimili eru langir, eins og margoft hefur verið rætt um í fjölmiðlum undanfarið. En er eina lausnin til þess að útrýma biðlistum að byggja fleiri hjúkrunarheimili? Auðvitað er það hluti af lausninni en við þurfum að setja egginn í fleiri en eina körfu. Ráðast á vandann frá báðum hliðum. Þess vegna er ábyrgð sveitarfélaga mikil þegar kemur að þessu verkefni. Biðlistar eru ekki náttúrulögmál Biðlistar verða til vegna þess ramma sem settur er utan um þjónustuna. Við þurfum að skoða hvers konar fyrirkomulag er á inntöku íbúa á hjúkrunarheimili og hvort megi endurskoða það. Við þurfum að skoða hvort við getum með einhverju móti gert þjónustuna sem fólk fær heima skilvirkari. Erum við að nýta vel mannauðinn sem veitir þá þjónustu? Gætum við samþætt betur þessa þjónustu? Þarf sér starfsmann til þess að aðstoða einstaklinga á fætur og annan sem kemur korteri seinna til þess að mæla blóðsykur? Svo kemur þriðja manneskjan eftir hádegi að þrífa? Það svo margt hægt að gera annað en að senda fólk á hjúkrunarheimili. Við þurfum að efla úrræði sem halda fólki virku, bæði líkamlega og félagslega. Ef þörfin minnkar þá minnka biðlistarnir. Lýðheilsa og forvarnir í fyrirrúmi Lýðheilsumál er eitthvað sem sjaldan er talað um í samhengi við þessa biðlista-útrýmingu. Ef við ætlum að byrja á réttum enda og útrýma biðlistum fyrir fullt og allt þá þarf að leggja áherslu á lýðheilsu og forvarnir. Byrja þarf að fyrirbyggja þörfina fyrir hjúkrunarheimili löngu áður en fólk er komið á eftirlaun. Byrgjum brunninn í stað þess að byggja brunna! Enginn er yfir það hafinn að endurskoða hluti sem ekki virka. Biðlistar eru mannanna verk alveg eins og hvert annað kerfi innan stjórnsýslunnar. Ef hlutirnir eru ekki að virka þá þarf að rýna þá og skoða hvernig við leysum vandann, til frambúðar. Sveitafélögin bera mikla ábyrgð Sveitarfélögin geta dregið úr þörfinni fyrir hjúkrunarheimili með því að stuðla að heilsueflandi samfélagi og góðan heimastuðning. Við í Viðreisn í Kópavogi viljum leggja áherslu á að bæta lífsgæði eldri borgara. Við viljum efla enn frekar starfsemi sem ýtir undir virkni og þátttöku í félagsstarfi. Við viljum samþætta þjónustuna og gera hana skilvirkari og þannig bæta lífsgæði og minnka biðlista. Höfundur er í 6. sæti Viðreisnar í Kópavogi og er sérfræðingur í öldrunarþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Eldri borgarar Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar