Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar 1. maí 2026 23:01 Borgarstjóri New York, hinn 34 ára Zohran Mamdani, er að gera stórkostlega hluti í stóra eplinu. Hann er byrjaður á þeirri vegferð að tryggja ókeypis leikskóla fyrir alla borgarbúa, að hluta til með fjármagni frá fylkinu, er að opna óhagnaðardrifnar matvöruverslanir á vegum borgarinnar, hefur lagt á fasteignaskatt á eignir yfir 5 milljón dollurum, ef eigendur þeirra búa ekki í borginni, og hefur gert ótal margt til þess að tryggja réttindi leigjenda og aðbúnað verkafólks. Kosningabarátta hans snerist um að hrifsa borgarbúa úr náköldum hrammi kapítalismans og verða borgarstjóri allra borgarbúa, ekki bara ríkasta eins prósentsins. Hans bíður reyndar erfitt verkefni, fjarhagsstaða borgarinnar var 5,4 milljarðar dollarar í mínus þegar hann tók við, og réttilega er Mamdani að auka álögur á fólk og fyrirtæki sem er vel aflögufært, en borgar allt of litla skatta, miðað við venjulegt launafólk - eins og er lenskan í Bandaríkjunum, þar sem ríkt fólk kemst upp með að borga persónulega ekkert til samfélagsins. Mamdani er sósíalískur demókrati, og kosning hans er vonarglæta í botnlausum spillingarpytti peninga og pólitíkur í Bandaríkjunum. Vonandi fær hann ráðrúm til þess að gera New York að manneskjulegri og sanngjarnari borg. Sanna Magdalena Mörtudóttir hefur alla burði til þess að verða Mamdani Reykjavíkur, enda er hún langefst á lista oddvita sem fólk treystir best til þess að stjórna borginni. Hún er sósíalisti og lítur því ekki á borgina fyrst og fremst sem fyrirtæki, heldur þéttbýliskjarna þar sem stjórn borgarinnar snýst um að tryggja jafnrétti og velferð allra borgarbúa á ábyrgan og sjálfbæran hátt. Sósíalistar eins og Mamdani og Sanna leggja áherslu á réttláta skattlagningu og líta til dæmis á heimili sem mannréttindi, ekki markaðsvöru, eins og segir í áherslumálum Vinstrisins. Sem borgarstjóri myndi Sanna taka við miklu betra búi en Mamdani í New York, og ég er ekki í nokkrum vafa um að hún sé hæfasta manneskjan til þess að gegna þessu mikilvæga starfi, og efla Reykjavík enn frekar sem höfuðborg Íslands. Höfundur er Reykjavíkingur og sósíalisti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Borgarstjóri New York, hinn 34 ára Zohran Mamdani, er að gera stórkostlega hluti í stóra eplinu. Hann er byrjaður á þeirri vegferð að tryggja ókeypis leikskóla fyrir alla borgarbúa, að hluta til með fjármagni frá fylkinu, er að opna óhagnaðardrifnar matvöruverslanir á vegum borgarinnar, hefur lagt á fasteignaskatt á eignir yfir 5 milljón dollurum, ef eigendur þeirra búa ekki í borginni, og hefur gert ótal margt til þess að tryggja réttindi leigjenda og aðbúnað verkafólks. Kosningabarátta hans snerist um að hrifsa borgarbúa úr náköldum hrammi kapítalismans og verða borgarstjóri allra borgarbúa, ekki bara ríkasta eins prósentsins. Hans bíður reyndar erfitt verkefni, fjarhagsstaða borgarinnar var 5,4 milljarðar dollarar í mínus þegar hann tók við, og réttilega er Mamdani að auka álögur á fólk og fyrirtæki sem er vel aflögufært, en borgar allt of litla skatta, miðað við venjulegt launafólk - eins og er lenskan í Bandaríkjunum, þar sem ríkt fólk kemst upp með að borga persónulega ekkert til samfélagsins. Mamdani er sósíalískur demókrati, og kosning hans er vonarglæta í botnlausum spillingarpytti peninga og pólitíkur í Bandaríkjunum. Vonandi fær hann ráðrúm til þess að gera New York að manneskjulegri og sanngjarnari borg. Sanna Magdalena Mörtudóttir hefur alla burði til þess að verða Mamdani Reykjavíkur, enda er hún langefst á lista oddvita sem fólk treystir best til þess að stjórna borginni. Hún er sósíalisti og lítur því ekki á borgina fyrst og fremst sem fyrirtæki, heldur þéttbýliskjarna þar sem stjórn borgarinnar snýst um að tryggja jafnrétti og velferð allra borgarbúa á ábyrgan og sjálfbæran hátt. Sósíalistar eins og Mamdani og Sanna leggja áherslu á réttláta skattlagningu og líta til dæmis á heimili sem mannréttindi, ekki markaðsvöru, eins og segir í áherslumálum Vinstrisins. Sem borgarstjóri myndi Sanna taka við miklu betra búi en Mamdani í New York, og ég er ekki í nokkrum vafa um að hún sé hæfasta manneskjan til þess að gegna þessu mikilvæga starfi, og efla Reykjavík enn frekar sem höfuðborg Íslands. Höfundur er Reykjavíkingur og sósíalisti.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar