„Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. apríl 2026 21:41 Valsmennirnir hans Finns Freys Stefánssonar verða að vinna Grindvíkinga á mánudaginn til að forðast snemmbúið sumarfrí. vísir/guðmundur Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, sagði að botninn hefði dottið úr leik hans manna undir lokin gegn Grindavík. Hann vill sjá sína lykilmenn spila betur í fjórða leiknum á mánudaginn en þeir gerðu í kvöld.
Grindavík vann þriðja leik liðanna í kvöld, 93-67, eftir að hafa verið átta stigum yfir í hálfleik, 48-40. „Þetta fjaraði út en mér fannst Grindavík bara betri, kröftugri og spiluðu heilt yfir miklu betur en við,“ sagði Finnur við Andra Má Eggertsson eftir leikinn í HS Orku-höllinni í kvöld. Finnur var ekki ósáttur við stöðuna þegar liðin gengu til búningsherbergja eftir fyrri hálfleikinn. En honum fannst seinni hálfleikurinn ekki góður hjá Val. „Mér fannst við vera í fínum málum í hálfleik miðað við að við vorum að hitta illa og tapa boltanum. Það var ekkert í leiknum sem gaf það til kynna að ég væri ósáttur, fyrir utan að við fengum á okkur 48 stig og mikið af auðveldum körfum,“ sagði Finnur. „Byrjunin á seinni hálfleik var slæm. Við skoruðum lítið í byrjun 3. leikhluta, vorum með mikið af töpuðum boltum og vorum of langt frá okkar besta.“ Igor Maric minnkaði muninn í átta stig, 68-60, í 4. leikhluta en þá setti Grindavík í fluggírinn og skoraði fjórtán stig í röð. „[Jeremy] Pargo skorar tvær körfur í röð, við töpuðum boltanum, munurinn varð svolítið mikill og við misstum hausinn,“ sagði Finnur. Callum Lawson og Keyshawn Woods fundu sig ekki í leiknum í kvöld og skoruðu aðeins ellefu stig samtals. „Þeir voru hvorugir nógu góðir í dag. Auðvitað gerðu þeir vel í að þétta meira og spiluðu góða vörn en þetta voru mikið af fínum færum. Við þurfum meira frá þeim en ég ætla ekkert að hengja þetta bara á þá. Við þurfum heilt yfir að spila betri körfuboltaleik en við gerðum í dag,“ sagði Finnur. Valsmenn verða að vinna Grindvíkinga á mánudaginn kemur, annars er þátttöku þeirra á þessu tímabili lokið. „Það er nú kosturinn við þessa blessuðu íþrótt að það skiptir ekki máli hvort þú tapar með einu stigi eða tuttugu. Þegar sex mínútur voru eftir vorum við búnir að koma þessu í leik en fórum illa að ráði okkar. Við þurfum bara að skoða okkar mál, fínpússa og finna hvað við þurfum að gera betur,“ sagði Finnur að lokum.
Bónus-deild karla Valur UMF Grindavík Mest lesið Kalla eftir því að dómari verði rekinn heim af HM Fótbolti Sádi-Arabía - Úrúgvæ | Úr sandinum á stóra sviðið Fótbolti Lykilmaður KR skall út í vegg og brotnaði á báðum höndum Íslenski boltinn Ætlar ekki að leggjast niður fyrir Víkinga og fara að grenja Íslenski boltinn Lét óánægju sína í ljós: „Dæmir af okkur fullkomlega löglegt mark“ Íslenski boltinn Unnusta leikmanns fyrir aðkasti í verslun eftir leik í Árbæ Íslenski boltinn Hamilton „laus við djöflana“ og í titilbaráttu Formúla 1 Svona mun nýja Þjóðarhöllin líta út Sport Mark dæmt af KA eftir að Framari braut á Framara Íslenski boltinn „Skyldan kallar hjá kærastanum“ Fótbolti Fleiri fréttir Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Sjá meira