Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Árni Sæberg skrifar 30. apríl 2026 15:22 Höfuðstöðvar líftæknifyrirtækisins Alvotech í Vatnsmýrinni. Vísir/Vilhelm Fulltrúar Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna, FDA, bönkuðu upp á í höfuðstöðvum Alvotech í Vatnsmýri í Reykjavík í gærmorgun. Þar framkvæma þeir átta daga fyrirvaralausa úttekt á aðstæðum og framleiðsluferlum. Félagið er að sögn vel undirbúið fyrir slíka heimsókn.
Þetta staðfestir fulltrúi Alvotech í samtali við Vísi en Viðskiptablaðið greindi fyrst frá úttektinni. Heimsóknin sé hluti af hefðbundnu og reglubundnu eftirliti FDA, sem lengi hafi tíðkast í Bandaríkjunum en heimild hafi fengist í fyrra til að framkvæma annars staðar. Gæti greitt leið að niðurstöðu varðandi útistandandi atriði Eftirlitið tengist þegar útgefnum framleiðsluleyfum en ekki umsóknum um ný leyfi. Næstu átta daga muni FDA fara yfir alla framleiðsluferla og aðstöðu í Vatnsmýrinni. „FDA hóf úttekt hjá Alvotech í gærmorgun. Flestar úttektir FDA eru gerðar án þess að stofnunin gefi viðkomandi lyfjafyrirtæki fyrirvara. Við höfum búið okkur vel undir slíka úttekt allt frá því að lyfjaeftirlitið lauk úttekt sinni í júlí á síðasta ári og erum bjartsýn á að þessi heimsókn geti mögulega greitt leiðina að niðurstöðu varðandi þau atriði sem voru útistandandi hjá eftirlitinu gagnvart Alvotech.“ Vel undirbúin að sögn Róberts Róbert Wessmann, stofnandi og stjórnarformaður Alvotech, sagði í samtali við Vísi í janúar að hann væri tilbúinn í að taka á móti útsendurum eftirlitsins hvenær sem er. „Ég lít svo á, og stjórn félagsins líka, að þó að við höfum, því miður, fengið þetta neikvæða svar við umsóknum um markaðsleyfi fyrir nýju lyfin frá FDA þá er þetta einungis tímabundið ástand og félagið er í sjálfu sér tilbúið að taka á móti FDA, ef þau kjósa að koma, hvenær sem er,“ sagði hann meðal annars.
Lyf Alvotech Tengdar fréttir Klístruð gólf og mygla meðal þess sem felldi Alvotech Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna, FDA, hefur birt skýrslu sína eftir úttekt á framleiðslu Alvotech í tengslum við umsókn félagsins um markaðsleyfi fyrir lyf, sem var hafnað á dögunum. Ábendingar stofnunarinnar eru tíu talsins og allar í nokkrum liðum. Meðal þess sem stofnunin setur út á eru klístruð gólf og mygla í verksmiðju Alvotech að Sæmundargötu í Vatnsmýri. 12. nóvember 2025 15:25 Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira
Klístruð gólf og mygla meðal þess sem felldi Alvotech Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna, FDA, hefur birt skýrslu sína eftir úttekt á framleiðslu Alvotech í tengslum við umsókn félagsins um markaðsleyfi fyrir lyf, sem var hafnað á dögunum. Ábendingar stofnunarinnar eru tíu talsins og allar í nokkrum liðum. Meðal þess sem stofnunin setur út á eru klístruð gólf og mygla í verksmiðju Alvotech að Sæmundargötu í Vatnsmýri. 12. nóvember 2025 15:25