Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Magnús Jochum Pálsson skrifar 29. apríl 2026 14:39 JJ frá Austurríki fagnaði sigri í Eurovision í fyrra. Vísir/EPA Úrslitakvöld Eurovision í Vín 16. maí næstkomandi verður sýnt í beinni á Rúv 2 vegna kosningavöku sveitarstjórnarkosninganna en undankvöldin tvö, 12. og 14. maí, verða sýnd á Rúv. Ríkissjónvarpsstöðvar Slóveníu, Írlands og Spánar hafa tilkynnt að þær muni ekki sýna Eurovision í ár vegna þátttöku Ísraela í keppninni.
Framkvæmdastjórn Ríkisútvarpsins tók ákvörðun 15. desember á síðasta ári um að Ísland yrði ekki með í Eurovision, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, en ákvörðunin var tekin í kjölfar þess að fulltrúar evrópskra sjónvarpsstöðva samþykktu að leyfa Ísraelum að taka þátt. Ísland bættist þar í hóp með Hollendingum, Spánverjum, Írum og Slóvenum sem höfðu þá þegar tilkynnt að þeir yrðu ekki með. Írar tilkynntu sömuleiðis að þeir myndu ekki sýna frá keppninni og Spánverjar gerðu það sömuleiðis. Í síðustu viku tilkynnti Ksenija Horvat, sjónvarpsstjóri ríkissjónvarpsins RTV Slovenia að keppnin yrði ekki sýnd og að í staðinn yrði kvikmyndaröðin Voices of Palestine, sem inniheldur palestínskar kvikmyndir og heimildarmyndir, sýnd. Rúv tók þá ákvörðun að sýna frá keppninni en hins vegar hefur ekki verið ljóst hvernig sýningu keppninnar yrði háttað sökum þess að sveitastjórnarkosningarnar fara fram sama dag og lokakvöld Eurovision. Nú liggur hins vegar fyrir að lokakvöldið verður sýnt í beinni útsendingu á Rúv 2 og að undankvöldin tvö verði sýnd á Rúv. „Undankvöldin tvö verða hliðruð á Rúv 1 og aðalkvöldið verður á Rúv 2 í beinni af því það er kosningakvöld,“ sagði Eva Georgs Ásudóttir, dagskrárstjóri sjónvarps RÚV, í samtali við fréttastofu. Eurovision fer fram í Vínarborg í Austurríki 12., 14. og 16. maí og munu 35 þjóðir taka þátt, þar á meðal Búlgaría, Rúmenía og Moldóva sem snúa aftur til keppni eftir stutta fjarveru.
Eurovision Eurovision 2026 Ríkisútvarpið Austurríki Tónlist Tengdar fréttir Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Björk, Ólafur Arnalds og Pálmi Gunnarsson eru meðal þeirra hundrað tuttugu og þriggja íslenskra listamanna sem hafa skrifað undir opið bréf þar sem aðdáendur eru hvattir til að sniðganga Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2026. Alls eru á listanum undirskriftir ríflega ellefu hundruð tónlistarmanna og hljómsveita á borð við Peter Gabriel, Massive Attack og Hot Chip. 21. apríl 2026 13:26 RÚV hættir við Söngvakeppnina RÚV hefur ákveðið að hætta við að halda Söngvakeppnina 2026 í ljósi þess að forsendurnar sem lagt var upp með, að sigurlagið yrði framlag Íslands í Eurovision, séu brostnar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun hvort og þá hvenær einhverskonar önnur söngvakeppni verður haldin í staðinn. 9. janúar 2026 22:35 Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira
Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Björk, Ólafur Arnalds og Pálmi Gunnarsson eru meðal þeirra hundrað tuttugu og þriggja íslenskra listamanna sem hafa skrifað undir opið bréf þar sem aðdáendur eru hvattir til að sniðganga Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2026. Alls eru á listanum undirskriftir ríflega ellefu hundruð tónlistarmanna og hljómsveita á borð við Peter Gabriel, Massive Attack og Hot Chip. 21. apríl 2026 13:26
RÚV hættir við Söngvakeppnina RÚV hefur ákveðið að hætta við að halda Söngvakeppnina 2026 í ljósi þess að forsendurnar sem lagt var upp með, að sigurlagið yrði framlag Íslands í Eurovision, séu brostnar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun hvort og þá hvenær einhverskonar önnur söngvakeppni verður haldin í staðinn. 9. janúar 2026 22:35