Áskoranir Ísafjarðarbæjar í húsnæðismálum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar 28. apríl 2026 15:21 Húsnæðisframboð er hornsteinn þess hvort samfélagið okkar haldi áfram að vaxa eða staðni og það er sannarlega tími til kominn að endurskoða húsnæðismál í Ísafjarðarbæ. Fyrir margt ungt fólk er fyrsta skrefið inn á markaðinn orðið óraunhæft. Það er ekki bara erfitt að safna fyrir útborgun til að komast í eigið húsnæði, heldur er erfitt að finna leiguhúsnæði á meðan safnað er. Þetta er gríðarleg hindrun fyrir fólk sem vill setjast að í okkar góða bæjarfélagi og því er mikilvægt fyrir okkur að spyrja okkur: Hvernig ætlum við að halda í unga fólkið okkar ef það er hvorki hægt að leigja né kaupa? Það segir sig sjálft að bæjarfélagið getur ekki haldið áfram að vaxa nema að uppbygging húsnæðis fylgi með og ekki er einungis hægt að treysta á getu foreldra til að halda þaki yfir uppkomnum börnum sínum Á sama tíma sitja eldri íbúar oft fastir í húsnæði sem hentar þeim ekki lengur. Ekki vegna þess að þeir vilji það, heldur vegna þess að það vantar raunhæfa valkosti til að minnka við sig. Þetta stoppar hreyfanleika á húsnæðismarkaði bæjarfélagsins. Raunin er sú að hringrásin er brotin. Ungt fólk kemst ekki inn, eldra fólk kemst ekki út, og uppbyggingin er mörgum árum á eftir íbúafjölgun og brúar ekki bilið. Afleiðingin er stöðnun sem við höfum einfaldlega ekki efni á. Lágtekjuhópar finna hvað mest fyrir þessu; einstæðir foreldrar, fólk í láglaunastörfum, öryrkjar, námsmenn sem eru að reyna að fóta sig á vinnumarkaði. Þetta er oft fólk sem heldur samfélaginu gangandi en situr fast í ótryggu húsnæði þar sem framtíðin er alltaf háð sölu eigna eða leigusamningi. Því er löngu tímabært að horfa á húsnæðismál Ísafjarðarbæjar með nýjum augum. Ekki bara bíða eftir markaðurinn leysi málið, heldur skoða markvisst hvaða leiðir bæjarstjórn getur farið til að hraða uppbyggingu, auka framboð og tryggja að samfélagið haldi áfram að vera lifandi. Þetta krefst þess að við tökum ákvörðun um að gera hlutina öðruvísi. Óhagnaðardrifin leigufélög bjóða upp á raunhæfan valkost; þar er markmiðið ekki að hámarka arð, heldur að tryggja stöðugt, öruggt og viðráðanlegt húsnæði til langs tíma. Slík uppbygging getur skapað þann fyrirsjáanleika sem vantar sárlega fyrir alla þá hópa sem eiga erfitt með að fóta sig á hefðbundnum markaði. Þess vegna viljum við í Samfylkingunni í Ísafjarðarbæ leita samstarfs við óhagnaðardrifin leigufélög og félagasamtök við uppbyggingu húsnæðis í bæjarfélaginu. Öflugt samfélag býður upp á fjölbreyttar leiðir í húsnæðismálum. Gerum það saman. Höfundur er oddviti á lista Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar