Að tala í mótsögn við sjálfan sig eða sitja hjá? Eva Þorsteinsdóttir skrifar 27. apríl 2026 13:48 Sjálfstæðisflokkurinn boðar breytingar í borginni komist þau til valda. En er hægt að treysta því? — Borgarlína: Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið mikinn um að Borgarlína verði endurskoðuð. Hvað þýðir það á mannamáli? Á kjörtímabilinu voru skiptar skoðanir um borgarlínuverkefnið í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Á meðan flokkurinn hafði sex borgarfulltrúa, lögðust fjórir þeirra gegn borgarlínu. Hildur Björnsdóttir oddviti var ekki einn af þeim! Hildur var hlynnt verkefninu eins og margoft hefur komið fram í ræðu og riti. Í viðtali á Útvarpi Sögu í janúar sagði Hildur að ekki væri raunhæft að hætta við borgarlínuverkefnið og að markmiðið væri ekki að fella það niður heldur að “laga” verkefnið. — Bílastæði: Sjálfstæðisflokkurinn hefur talað fyrir því að bílastæði verði endurheimt og gjaldskylda og gjaldskyldutími lækkaður. Hvernig má þá vera að í mars 2021 þegar þáverandi meirihluti Samfylkingar, Pírata, Viðreisnar og VG samþykktu aðgerðaráætlun loftslagsmála sem fól meðal annars í sér að bílastæðum Reykjavíkur skyldi fækkað um 2% árlega, eða um 600 stæði, þrátt fyrir mikla fjölgun íbúða á sama tíma, að Hildur núverandi oddviti greiddi atkvæði með áætluninni og þar með stefnu um mikla fækkun bílastæða í borginni? Árið 2023 gerði vinstri meirihlutinn í borginni eina mestu hækkun þjónustugjalda hjá Reykjavíkurborg. Gjaldskyldutími á P1 og P2 var lengdur til kl 21 alla daga og sunnudögum bætt við. Einnig voru gjaldsvæði stækkuð inní hreinar íbúabyggðir í Austur og Vesturbæ. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks sátu hjá við þessar tillögur! Ljóst er að þeir flokkar sem styðja Borgarlínuna styðja um leið miklar skattahækkanir á Reykvíkinga. Skattahækkanir er ekki það sem borgarbúar þurfa á að halda. Miðflokkurinn er hinsvegar mjög skýr í afstöðu sinni hvort sem um er að ræða borgarlínuverkefnið eða bílastæðamál. Frambjóðendur flokksins vilja fjölga bílastæðum í miðborginni og þar sem þörf er á. Lækka gjaldskyldu í “gamla verðið”, stytta gjaldtímann, og tekur skýra afstöðu gegn borgarlínu. Miðflokkurinn talar hvorki í mótsögn né ætlar sér að sitja hjá! Höfundur er frambjóðandi Miðflokksins Í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Sjálfstæðisflokkurinn boðar breytingar í borginni komist þau til valda. En er hægt að treysta því? — Borgarlína: Sjálfstæðisflokkurinn hefur farið mikinn um að Borgarlína verði endurskoðuð. Hvað þýðir það á mannamáli? Á kjörtímabilinu voru skiptar skoðanir um borgarlínuverkefnið í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Á meðan flokkurinn hafði sex borgarfulltrúa, lögðust fjórir þeirra gegn borgarlínu. Hildur Björnsdóttir oddviti var ekki einn af þeim! Hildur var hlynnt verkefninu eins og margoft hefur komið fram í ræðu og riti. Í viðtali á Útvarpi Sögu í janúar sagði Hildur að ekki væri raunhæft að hætta við borgarlínuverkefnið og að markmiðið væri ekki að fella það niður heldur að “laga” verkefnið. — Bílastæði: Sjálfstæðisflokkurinn hefur talað fyrir því að bílastæði verði endurheimt og gjaldskylda og gjaldskyldutími lækkaður. Hvernig má þá vera að í mars 2021 þegar þáverandi meirihluti Samfylkingar, Pírata, Viðreisnar og VG samþykktu aðgerðaráætlun loftslagsmála sem fól meðal annars í sér að bílastæðum Reykjavíkur skyldi fækkað um 2% árlega, eða um 600 stæði, þrátt fyrir mikla fjölgun íbúða á sama tíma, að Hildur núverandi oddviti greiddi atkvæði með áætluninni og þar með stefnu um mikla fækkun bílastæða í borginni? Árið 2023 gerði vinstri meirihlutinn í borginni eina mestu hækkun þjónustugjalda hjá Reykjavíkurborg. Gjaldskyldutími á P1 og P2 var lengdur til kl 21 alla daga og sunnudögum bætt við. Einnig voru gjaldsvæði stækkuð inní hreinar íbúabyggðir í Austur og Vesturbæ. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks sátu hjá við þessar tillögur! Ljóst er að þeir flokkar sem styðja Borgarlínuna styðja um leið miklar skattahækkanir á Reykvíkinga. Skattahækkanir er ekki það sem borgarbúar þurfa á að halda. Miðflokkurinn er hinsvegar mjög skýr í afstöðu sinni hvort sem um er að ræða borgarlínuverkefnið eða bílastæðamál. Frambjóðendur flokksins vilja fjölga bílastæðum í miðborginni og þar sem þörf er á. Lækka gjaldskyldu í “gamla verðið”, stytta gjaldtímann, og tekur skýra afstöðu gegn borgarlínu. Miðflokkurinn talar hvorki í mótsögn né ætlar sér að sitja hjá! Höfundur er frambjóðandi Miðflokksins Í Reykjavík.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar