Ekki bara barnvænt sveitarfélag í kosningabaráttu Leyla Ósk Jónsdóttir skrifar 27. apríl 2026 07:30 Þar sem sveitastjórnarkosningar eru þann 16. maí finnst mér viðeigandi að beina spurningum til frambjóðenda um málaflokk sem hefur ekki fengið næga athygli í umræðunni. Börn með fötlun í grunnskólum Akureyrarbæjar hafa upplifað töluvert ósamræmi í þeirri aðstoð sem þau fá í námi. Slíkt ósamræmi snýst ekki aðeins um magn stuðnings heldur einnig gæði hans, skipulag og aðgengi að sérfræðiþjónustu. Foreldrar og forráðamenn hafa ítrekað bent á að þjónustan virðist of oft ráðast af tilviljunum – hvaða skóla barnið sækir, hvaða starfsmenn eru til staðar hverju sinni og hvernig fjármagni er úthlutað. Þessi staða vekur upp grundvallarspurningar um jafnræði og réttlæti í menntakerfinu. Samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eiga öll börn rétt á menntun (28. grein) og að fá að njóta réttinda sinna án mismununar (2. grein). Þá er sérstaklega kveðið á um að börn með fötlun eigi rétt á þeirri aðstoð sem þau þurfa til að lifa innihaldsríku lífi og taka virkan þátt í samfélaginu (23. grein). Þetta eru ekki tilmæli – þetta eru skuldbindingar sem stjórnvöld, þar á meðal sveitarfélög, bera ábyrgð á að uppfylla. Sérstaklega er mikilvægt að benda á stöðu barna með minni sýnilega fötlun. Þau börn falla oft á milli kerfa, þar sem þarfir þeirra eru ekki jafn augljósar og því síður forgangsraðað. Þetta geta verið börn með taugaþroskaraskanir, geðrænar áskoranir eða aðrar ósýnilegar skerðingar sem hafa engu síður raunveruleg áhrif á nám og daglegt líf. Ef ekki er brugðist við þörfum þeirra á markvissan hátt er hætta á að þau upplifi sig ósýnileg innan skólakerfisins – sem gengur þvert gegn anda Barnasáttmálans. Akureyrarbær hefur jafnframt lagt áherslu á að vera barnvænt sveitarfélag og var fyrst sveitarfélaga á landinu til að hljóta slíka viðurkenningu. Með því fylgja ákveðnar skyldur – að setja hagsmuni barna í forgang, hlusta á raddir þeirra og tryggja að réttindi þeirra séu virt í verki, ekki aðeins á pappír. Það er því eðlilegt að spyrja: Hvernig endurspeglast þessi viðurkenning í raunverulegri þjónustu við börn með fötlun í skólum bæjarins? Er verið að standa undir þeim kröfum sem felast í því að kalla sig barnvænt sveitarfélag, eða er hætta á að það verði fyrst og fremst titill sem er viðhaldið við endurmat, án þess að raunverulegar úrbætur fylgi í kjölfarið? Að vera barnvænt sveitarfélag krefst meira en yfirlýsinga og umsóknaferla. Það krefst gagnsæis, sjálfsgagnrýni og raunverulegra aðgerða þegar brotalamir koma í ljós. Það krefst þess að hlustað sé á reynslu barna og foreldra – líka þegar hún er óþægileg. Ég vil því spyrja frambjóðendur: Hvernig hyggist þið tryggja samræmda og faglega þjónustu við börn með fötlun í grunnskólum bæjarins? Hvernig ætlið þið að koma í veg fyrir að börn með minna sýnilegar þarfir gleymist? Og hvernig munuð þið tryggja að staða Akureyrarbæjar sem barnvæns sveitarfélags endurspegli raunveruleikann í daglegu lífi barna? Höfundur er fulltrúi í Ungmennaráði Akureyrarbæjar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar