Gunnar Nelson í sjómann við mann sem hann átti að mæta í búrinu Aron Guðmundsson skrifar 26. apríl 2026 22:30 Gunnar og Kim í hörku sjómann UFC bardagakappinn Gunnar Nelson hefur verið við æfingar hjá SBG á Írlandi undanfarna daga þar sem að hann heldur sér við og bætir sig, þegar vonandi styttist í næsta bardaga hans. Gunnar hafði betur í sjómann við kollega sinn í UFC og birtist myndband af viðureign þeirra á samfélagsmiðlum.
Hjá SBG á Írlandi hittir Gunnar fyrir þjálfara sinn John Kavanagh sem er jafnframt þjálfari Conor McGregor, þekktasta bardagamanns UFC sambandsins en orðrómur er á kreiki um að nú styttist í endurkomu hans í búrið. Gunnar hefur verið í slagtogi með hóp suður-kóreskra bardagakappa á meðan á dvöl hans hefur staðið hjá SBG. Þeirra á meðal er Dong Hyun Kim sem er fyrsti bardagakappinn frá Suður-Kóreu til þess að komast á samning hjá UFC. View this post on Instagram A post shared by Gunnar Nelson (@gunninelson) Á einni æfingu sinni hjá SBG ákváðu Gunnar og Kim að taka eina viðureign í sjómann. Myndband af viðureigninni birtist á samfélagsmiðlareikningi Kim og má sjá að hart var barist. Viðureignin endaði þó með sigri Gunnars og höfði kapparnir gaman af þessu. View this post on Instagram A post shared by Gunnar Nelson (@gunninelson) Vel fer á með Gunnari og Kim en þeir áttu að mætast í bardagabúrinu árið 2016. Gunnar meiddist hins vegar í aðdraganda bardagans og ekkert varð af honum. Um stund virtist anda köldu á milli þeirra því í frétt sem birtist á Vísi árið 2017 er greint frá því að Kim hafi talið Gunnar fá sérmeðferð hjá UFC þar sem hann væri í liði með Conor McGregor. Ekki er annað að sjá en að Gunnar sé í hörku standi en í samtali við Vísi í mars sagðist hann vera með augun á bardaga í ár. Gunnar átti að mæta Neal Magny í bardagabúrinu síðasta sumar en þurfti að draga sig úr þeim bardaga vegna meiðsla. Gunnar barðist síðast fyrir um ári síðan og tapaði þá á einróma dómaraúrskurði gegn Kevin Holland en fyrir þann bardaga hafði Gunnar unnið tvo bardaga í röð.
MMA Mest lesið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Fleiri fréttir Yfir áttatíu erlendir skautarar svífa um í Laugardal Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram Snýr aftur til keppni eftir saurslysið „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Átti erfitt fyrsta tímabil en getur nú skrifað söguna „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Dagskráin: Skiptiborðið og risaleikur á Króknum Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof Sjá meira