Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson skrifar 26. apríl 2026 12:31 Gamla hlaðan á Vífilsstöðum er í dag tákn um stöðnun. Eins og kom fram í nýlegri fjölmiðlaumfjöllun hefur hún látið verulega á sjá, er orðin að slysagildru og dregur að sér óæskilega umgengni. Á sama tíma er þetta eitt sögufrægasta og áhugaverðasta svæði Garðabæjar – staður með einstaka sögu, vel staðsettur og með augljós en vannýtt tækifæri. Ætlum við að halda áfram að horfa upp á niðurníðslu – eða taka ákvörðun um að gera eitthvað? Hlaðan á Vífilsstöðum er alfriðuð. Ástand hennar versnar hins vegar með tímanum, sem þýðir að kostnaður við viðgerðir eykst eftir því sem lengur er beðið. Á sama tíma stendur hún ónotuð og Vífilsstaðasvæðið vannýtt. Svæði með sannað aðdráttarafl Það hefur ekki skort hugmyndir um svæðið. Ítrekað hefur verið bent á möguleika Vífilsstaða, bæði fyrir menningu, útivist og ferðaþjónustu. Við höfum mjög gott dæmi en það er því miður eina dæmið, þegar hljómsveitin Of Monsters and Men, sem á rætur í Garðabæ, hélt tónleika á Vífilsstaðatúni árið 2013 tókst að skapa einstaka stemningu sem tengdi tónlist, náttúru og staðinn sjálfan. Það sýndi að svæðið virkar – ef það er nýtt rétt. Garðbæingar og aðrir flykktust til Vífilsstaða til að njóta þessa viðburðar. Síðan hefur ekkert gerst. Þetta er ekki ný hugsun. Í 100 ára afmælisriti Vífilstaða frá 2010 sagði Gunnar Einarsson, þáverandi bæjarstjóri, að Vífilsstaðir væru „höfuðból Garðabæjar, sem mikilvægt er að varðveita“. Sextán árum síðar er eðlilegt að spyrja: er ekki kominn tími til að fylgja þessum orðum eftir með aðgerðum? Heildstætt verkefni Það sem vantar er skýr sýn.Í stað þess að líta á hlöðuna sem einangrað vandamál væri nær að horfa á Vífilsstaði sem eitt heildstætt verkefni. Hlaðan sjálf þarf hlutverk – en það hlutverk verður ekki sterkt nema í samhengi við svæðið í kring. Hér mætti hugsa í blöndu af menningu, viðburðum og rekstri. Endurnýjuð hlaða gæti hýst listir, sýningar eða minni viðburði, á meðan túnið sjálft yrði markvisst nýtt fyrir útivist og stærri viðburði yfir sumartímann. Þetta kostar – en hvað kostar að gera ekkert? Auðvitað kostar þetta peninga. Endurnýjun friðaðra húsa er flókin og krefst samráðs, skipulags og fjárfestingar. En að gera ekkert er ekki kostnaðarlaust. Það felur í sér áframhaldandi niðurníðslu, aukna áhættu og glötuð tækifæri. Spurningin er því ekki hvort þetta kosti – heldur hvað við fáum í staðinn. Næsta skref: taka umræðuna úr biðstöðu Kannski er næsta skref ekki að ákveða nákvæmlega hvað á að gera, heldur að taka verkefnið alvarlega. Að láta vinna raunhæfa greiningu á kostnaði, möguleikum og rekstrarmöguleikum. Að skoða samstarf milli hins opinbera og einkaaðila. Að setja fram skýra mynd af því hvað er raunverulega í boði – og hvað þarf til að láta það gerast. Án slíkrar vinnu mun umræðan halda áfram að snúast um sama hlutinn: að ástandið sé slæmt og að eitthvað þurfi að gera. En án ákvarðana breytist ekkert. Frá vandamáli í tækifæri Vífilsstaðir eru í dag dæmi um það sem gerist þegar staður með mikla möguleika fær ekki skýrt hlutverk. En þeir gætu líka orðið dæmi um hið gagnstæða – hvernig hægt er að taka sögulegan stað sem er að grotna niður og umbreyta honum í lifandi hluta af bæjarlífinu. Það krefst ekki fullkominnar lausnar strax. En það krefst þess að við hættum að líta á þetta sem vandamál sem má bíða – og förum að líta á þetta sem tækifæri sem vert er að nýta. Höfundur er viðburðahaldari og í þriðja sæti Viðreisnar í Garðabæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Garðabær Viðreisn Mest lesið „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar Skoðun Verum JÁ-kvæð í ágúst Kristján Kristinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar
Skoðun Við erum öll í sama liði: mikilvægi þess að ræða við börn um virðingu í samskiptum Arna Hrönn Aradóttir skrifar