Hefjum uppbyggingu miðbæjar Egilsstaða Jóhann Hjalti Þorsteinsson skrifar 26. apríl 2026 07:32 Fyrir nokkru tókst að afgreiða metnaðarfullt deiliskipulag fyrir miðbæ Egilsstaða. Síðan þá hefur ekkert frést af nýjum framkvæmdum í miðbænum öðrum en uppsetningu hleðslustöðva og stopulum hrinum við fjölbýlishús eldri íbúa. Þessi kyrrstaða verður mögulega ekki rofin öðruvísi en með frumkvæði sveitarfélagsins. Gamalt ráðhús Á sama tíma blasir við annað kostnaðarsamt vandamál sem bregðast þarf við. Í dag er stjórnsýsla sveitarfélagsins staðsett í gömlu iðnaðarhúsnæði sem er á margan hátt óhentugt sem skrifstofuhús. Þróun þessarar aðstöðu hefur átt sér stað yfir langan tíma og nú er svo komið að viðhaldsþörf á húsnæðinu er orðin umtalsverð og liggur húsnæðið undir skemmdum. Til stendur á næstu árum að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir og fyrirséð er að þær muni kosta sveitarfélagið nokkur hundruð miljónir króna. Meðal annars þarf að klæða húsið og skipta um glugga og hurðir. Þá þarf að koma upp loftræstingu þar sem hitasveiflur í húsinu eru mjög miklar eftir því hvernig viðrar. Skipulag húsins er að mörgu leiti óhentugt og hægt væri að færa rök fyrir kostnaðarsömum breytingum innanhús til að bæta þar úr. Hæfingar- og iðjuvinnustaðurinn Stólpi er í húsinu en aðstæðan þar er orðin þröng og óhentug. Ein lausn Hér eru nokkur vandamál sem hægt væri að leysa í einu verkefni. Á sama tíma og eftirspurn eftir lóðum í miðbænum er í frostmarki er nokkur eftirspurn eftir iðnaðarhúsnæði/lóðum á Egilsstöðum. Stjórnsýsla sveitarfélagsins má vel heima í miðbænum. Og enn auðveldara er að tala fyrir því að skjólstæðingar Stólpa fái inni í nýju hentugu húsnæði í miðbænum í stað þess að vera settir til hliðar í iðnaðarhverfi. Í miðbænum eiga þau auðveldara með að koma út á meðal fólks og vera hluti af samfélaginu. Hugmyndin að lausn á þessum málum er að í stað þess að fara út í kostnaðarsamar viðgerðir og breytingar á húsnæðinu að Lyngási, yrði það selt og sveitarfélagið reisti eða láti reisa fyrir sig byggingu eða byggingar í miðbænum, sem hýsa myndu stjórnsýsluna og Stólpa auk annarar starfsemi eða íbúða. Með frumkvæði sveitarfélagsins í framkvæmdum í miðbænum mætti byggja undir tiltrú fjárfesta á verkefninu. Ef hægt er að koma uppbyggingu miðbæjarins af stað myndi framboð á íbúðum stór aukast á Egilsstöðum, því gert er ráð fyrir þó nokkrum fjölda þeirra í miðbænum. Höfundur er varasveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi og í 4. sæti Austurlista og Viðreisnar í Múlaþingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar