Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 30. apríl 2026 08:02 Ómar Gunnarsson er oddviti X-Ó Óskalistans í Norðurþingi. Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Ómar Gunnarsson er oddviti X-Ó Óskalistans í Norðurþingi. Ég er uppalinn á sveitabæ í Núpasveit. Núna bý ég ásamt eiginkonu minni, Halldísi Grímu Halldórsdóttur frá Bjarnastöðum í Öxarfirði og fjórum börnum á Kópaskeri. Ég er menntaður bifvélavirki, húsamálari og meindýraeyðir og rek mitt eigið fyrirtæki við ýmiss konar viðhaldsverkefni tengdri menntun minni. Frá því á unglingsárum hef ég haft töluverðan áhuga á málefnum tengdum sveitarfélaginu, en ekki látið ljós mitt skína á þeim í þeim málum fyrr, þrátt fyrir fjölda áskorana í gegnum tíðina. Norðurþing er 20 ára gamalt sveitarfélag, sem varð til við sameiningu margra smárra sveitarfélaga. Það er mín skoðun að sú aðgerð hafi ekki tekist eins og lagt var upp með. Það er því eitt af meginmálefnum mínum að koma á sátt, góðum samskiptum og trausti milli allra aðila um allt sveitarfélagið. Það eru fáir sáttir við fyrirkomulagið eins og það er í dag, hvar sem þeir búa. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Sennilega á Austurlandi“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Nú Brosir Nóttin, eftir Theódór Gunnlaugsson.“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Það er eitthvað sem erfitt er að svara nema kafa í reikninga, en dettur helst í hug að skoða þyrfti leigusamninga við einkaaðila, aðkeypta sérfræðiþjónustu og yfirbyggingu stjórnkerfis. Þjónustu er ekki hægt að skerða meir að svo stöddu.“ Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau „Viðhald fasteigna“ Ómar með fjölskyldunni.Aðsend Hver væri titill ævisögu þinnar? „Sérvitur sveitavargur“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Hringja“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Listinn er svo ný til kominn, að svoleiðst ágreiningur hefur ekki komið upp.“ Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Tungumálasérfræðingur, gæti skilið og talað mikið fleiri tungumál.“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Ég hugsa að ég muni fljótlega gera atlögu um breytingar á refaveiðum og minkaveiðum, sem gæti orðið umdeilt málefni nú sem endra nær, lítið mál en áhrifamikið.“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Ég er lélegur í því að nota hana.Ég hef einstaka sinnum notað hana, þá helst að spyrja spurninga eða hjálpa til við ritvinnslu.“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Það er allt opið í þeim málum, við erum nýtt framboð.“ Efstu sex sæti Óskalistans.Aðsend Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni. „Þegar 10. bekk lauk fannst mér skorta mikið leiðbeiningar um framhaldið. Á þessum tímapunkti þurfti ég að flytja að heiman til að mennta mig meira. Þá tel ég mig hafa gert mistök, að fara ekki beint í Vélskóla Íslands ( Nú Tækniskólann) í vélstjórnarnám. Ég tel að það hefði breitt miklu í mínu lífi. Þarna skorti verulega almenna fræðslu um framhaldið eftir grunnskóla, sérstaklega fyrir þá sem þurftu að sækja nám fjarri heimili sínu.“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Það er kostur að allir þekkja alla, þó það geti stundum verið aðeins íþyngjandi. Mikið land og fjölbreytt landslag með miklum tækifærum í hvaða atvinnustarfsemi sem er.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Létt ab-mjólk“ Ómar á hreindýraveiðum með föður sínum árið 2018 við Bakkafjörð.Aðsend Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Það er helst að stjórnun sveitarfélagsins er öll á einum stað og í þröngum hópi. Samvinnu hefur skort við íbúa, sem veldur því að traust minnkar gagnvart kjörnum fulltrúum og embættismönnum.“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Koma í gang stórri atvinnuppbyggingu á mörgum sviðum sem skila miklum tekjum.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Dýrið gengur laust – Ríó Tríó“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Ég tel að óvarlega hafi verið farið með sveitarsjóð, og treyst hafi verið á tekjur sem voru í raun ótryggar.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Morri. Þegar ég var í 8.bekk þótti sé svo kuldalegur einn morguninn þegar ég mætti í skólann að Ríkey skólasystir mín sagði að ég væri eins og Morrinn í múmínálfunum.“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Ég svík ekki það sem ég ekki lofa.“ Vísir skorar á oddvita stjórnmálaflokka út um allt land að taka þátt í Oddvitaáskoruninni til að kynna sig og sín málefni. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að senda póst á siljars@syn.is. Fyrri Oddvitaáskoranir má skoða á síðunni visir.is/p/oddvitaaskorun. Oddvitaáskorunin Norðurþing Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Fleiri fréttir Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Sjá meira
Vísir skorar á oddvita stjórnmálaflokka út um allt land að taka þátt í Oddvitaáskoruninni til að kynna sig og sín málefni. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að senda póst á siljars@syn.is. Fyrri Oddvitaáskoranir má skoða á síðunni visir.is/p/oddvitaaskorun.
Oddvitaáskorunin Norðurþing Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Fleiri fréttir Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Sjá meira