Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Árni Sæberg skrifar 22. apríl 2026 15:55 Elfa Ýr Gylfadóttir er framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar. Vísir/Egill Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, hafði betur gegn íslenska ríkinu fyrir Hæstarétti í dag. Því þarf fjármála- og efnahagsráðherra að útskýra skriflega hvernig launakjör Elfu Ýrar og annarra forstöðumanna eru ákvörðuð. Það gæti útheimt heljarinnar vinnu þar sem forstöðumenn ríkisins eru um 200 talsins.
Í dómi Hæstaréttar þess efnis, sem kveðinn var upp klukkan 14, segir að Elfa Ýr hafi höfðað mál gegn ríkinu og krafist viðurkenningar á rétti sínum til rökstuðnings fyrir ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra um laun hennar og til aðgangs að skriflegum gögnum sem ákvörðunina vörðuðu. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu árið 2023 að ráðherra bæri að afhenda rökstuðninginn en Landsréttur sneri þeim dómi fyrir rétt rúmu ári. Í dómi Hæstaréttar segir að ákvörðun ráðherra hafi verið tekin á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sem kveði á um að ráðherra taki ákvörðun um laun forstöðumanna ríkisstofnana í samræmi við grunnmat starfanna. Stjórnvaldsákvörðun eða almenn fyrirmæli? Ágreiningur aðila hafi lotið að því hvort ákvörðunin teldist stjórnvaldsákvörðun í skilningi stjórnsýslulaga eða almenn stjórnvaldsfyrirmæli. Hæstiréttur vísaði til þess að þótt viðmið að baki grunnmati hefðu að geyma nokkur einkenni almennra stjórnvaldsfyrirmæla væri orðalag laganna ekki einhlítt. Í tilteknu ákvæði laganna kæmi fram að ákvörðun samkvæmt því yrði ekki skotið til annars stjórnvalds. Um það væri gefin sú skýring í lögskýringargögnum að reglan væri með þessum hætti sökum þess að um væri að ræða endanlega ákvörðun á stjórnsýslustigi. Fallist var á með Elfu Ýri að slíkt ákvæði væri óþarft og í andstöðu við annað í lögunum væri ákvörðun um laun forstöðumanns samkvæmt því almenn stjórnvaldsfyrirmæli en ekki stjórnvaldsákvörðun. Á hagsmuni af því að njóta aðildar Þá kom fram í dómi Hæstaréttar að réttur embættismanns sem gegndi starfi forstöðumanns til launa fyrir störf sín væri reistur á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og ákvörðun um laun hans beindist því að lögbundnum réttindum þess einstaklings sem gegndi starfinu hverju sinni. Ætti hann því hagsmuni af því að eiga aðild samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga að ákvörðun um þau réttindi og skyldur sem lytu að launakjörum hans. Slíkri aðild þyrfti að fylgja réttur viðkomandi til aðgangs að gögnum um ákvörðunina og til að koma að athugasemdum áður en rökstudd ákvörðun um hagsmuni hans yrði tekin. Því var fallist á að ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra væri stjórnvaldsákvörðun og viðurkenndur réttur Elfu Ýrar til rökstuðnings um þá ákvörðun og aðgang að skriflegum gögnum sem hana vörðuðu.
Dómsmál Rekstur hins opinbera Mannauðsmál Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira