Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Árni Sæberg skrifar 22. apríl 2026 14:48 Maðurinn var þrisvar gripinn við harmonikkuleik í miðborginni. Myndin er úr safni. Getty/M-production Karlmaður hefur verið dæmdur til 90 daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir auðgunarbrot, brot gegn útlendingalögum og fíkniefnalagabrot. Hann var aftur á móti sýknaður af ákæru fyrir að hafa ítrekað valdið hneykslan og óspektum á almannafæri vegna ölvunar og ónæði með því að betla þar peninga af almenningi með harmonikkuspili.
Þetta kemur fram í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp í gær. Með honum var maðurinn sakfelldur fyrir að hafa í þrígang stolið úr verslunum, fjársvik, með því að hafa keypt vörur með stolnu greiðslukorti, brot á útlendingalögum, með því að framvísa ekki skilríkjum og fíkniefnalagabrot, með því að hafa í vörslum sínum smáræði af kannabisefnum. Þá var maðurinn einnig ákærður fyrir að hafa í þrjú mismunandi skipti brotið gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar, með því að hafa valdið ónæði og hneykslan á almannafæri í miðborginni með því að betla þar peninga af almenningi með harmonikkuspili. Í tvö skiptanna var hann einnig ákærður fyrir brot á áfengislögum með því að hafa verið ölvaður á meðan hann mundaði nikkuna. Í niðurstöðu héraðsdóms hvað þau ætluðu brot varðar segir að ekkert liggi fyrir sem sýni að maðurinn hafi valdið hneykslan, óspektum eða ónæði á almannafæri vegna ölvunar eða með því að betla fé af almenningi með harmonikkuspili. Sé því ekki komin fram lögfull sönnun þess að hann hafi gerst sekur um þau brot sem honum voru gefin að sök í þessum ákæruliðum og verði hann því sýknaður af þeim.
Dómsmál Reykjavík Tónlist Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Sjá meira