Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Anton Guðmundsson skrifar 22. apríl 2026 12:32 Það gerist ekkert af sjálfu sér. Þessi einföldu sannindi þekkjum við öll sem búum í litlu samfélagi. Hér skiptir framlag hvers og eins máli – fyrir okkur sjálf, fyrir umhverfið og fyrir samfélagið í heild. Árangur verður ekki til af tilviljun, hann byggist á samvinnu, ábyrgð og skýrri sýn á verkefnið. Ég veit hvað þarf til að ná árangri. Frá því ég tók sæti í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar fyrir fjórum árum hef ég unnið af fullum krafti að málefnum sveitarfélagsins. Ég hef beitt mér markvisst gagnvart ríkinu, staðið vörð um hagsmuni íbúa og lagt mig fram um að tryggja að rödd samfélagsins heyrist. Það skiptir máli að vera bæði ákveðinn og heiðarlegur í störfum sínum – hvort sem verkefnin eru stór eða smá. Eitt skýrt dæmi um þetta er heilsugæslan í Suðurnesjabæ. Hún var lengi á óskalistanum hjá bæjaryfirvöldum en er nú loksins orðin að veruleika. Það verkefni raungerðist á vakt B-lista Framsóknar, sem sat í meirihluta fyrri hluta kjörtímabilsins á árunum 2022–2024. Það gerðist ekki af sjálfu sér heldur með markvissri vinnu, samstöðu og eftirfylgni, auk góðra samtala við Willum Þór Þórsson, þáverandi heilbrigðisráðherra. Þetta er árangur sem skiptir raunverulegu máli fyrir íbúa og bætir lífsgæði okkar allra. Slík verkefni sýna hvað er hægt þegar vilji og verk fara saman. En við megum ekki staldra við. Það er enn margt sem þarf að gera til að efla samfélagið okkar enn frekar, styrkja innviði og skapa tækifæri til framtíðar. Ég vil halda áfram að vinna fyrir þig og samfélagið okkar. Með áframhaldandi krafti, festu og heilindum getum við byggt á þeim árangri sem þegar hefur náðst og haldið áfram að þróa bæinn okkar til hins betra. Við í B-listanum óskum eftir þínum stuðningi í komandi kosningum svo við getum haldið áfram að vinna samfélaginu til heilla. Setjum X við B þann 16. maí.Árangur áfram – ekkert stopp. Höfundur er oddviti Framsóknar og óháðra í Suðurnesjabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Anton Guðmundsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Suðurnesjabær Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Það gerist ekkert af sjálfu sér. Þessi einföldu sannindi þekkjum við öll sem búum í litlu samfélagi. Hér skiptir framlag hvers og eins máli – fyrir okkur sjálf, fyrir umhverfið og fyrir samfélagið í heild. Árangur verður ekki til af tilviljun, hann byggist á samvinnu, ábyrgð og skýrri sýn á verkefnið. Ég veit hvað þarf til að ná árangri. Frá því ég tók sæti í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar fyrir fjórum árum hef ég unnið af fullum krafti að málefnum sveitarfélagsins. Ég hef beitt mér markvisst gagnvart ríkinu, staðið vörð um hagsmuni íbúa og lagt mig fram um að tryggja að rödd samfélagsins heyrist. Það skiptir máli að vera bæði ákveðinn og heiðarlegur í störfum sínum – hvort sem verkefnin eru stór eða smá. Eitt skýrt dæmi um þetta er heilsugæslan í Suðurnesjabæ. Hún var lengi á óskalistanum hjá bæjaryfirvöldum en er nú loksins orðin að veruleika. Það verkefni raungerðist á vakt B-lista Framsóknar, sem sat í meirihluta fyrri hluta kjörtímabilsins á árunum 2022–2024. Það gerðist ekki af sjálfu sér heldur með markvissri vinnu, samstöðu og eftirfylgni, auk góðra samtala við Willum Þór Þórsson, þáverandi heilbrigðisráðherra. Þetta er árangur sem skiptir raunverulegu máli fyrir íbúa og bætir lífsgæði okkar allra. Slík verkefni sýna hvað er hægt þegar vilji og verk fara saman. En við megum ekki staldra við. Það er enn margt sem þarf að gera til að efla samfélagið okkar enn frekar, styrkja innviði og skapa tækifæri til framtíðar. Ég vil halda áfram að vinna fyrir þig og samfélagið okkar. Með áframhaldandi krafti, festu og heilindum getum við byggt á þeim árangri sem þegar hefur náðst og haldið áfram að þróa bæinn okkar til hins betra. Við í B-listanum óskum eftir þínum stuðningi í komandi kosningum svo við getum haldið áfram að vinna samfélaginu til heilla. Setjum X við B þann 16. maí.Árangur áfram – ekkert stopp. Höfundur er oddviti Framsóknar og óháðra í Suðurnesjabæ.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar