Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Atli Ísleifsson skrifar 22. apríl 2026 07:24 Framboð á fasteignum hefur aukist hlutfallslega mest í nágrenni höfuðborgarsvæðisins þar sem séu nú um 67 prósent fleiri íbúðir til sölu en í apríl 2025. Vísir/Vilhelm Níu af hverjum tíu fasteignasölum telja að virkni á fasteignamarkaði sé lítil miðað við árstíma í byrjun apríl og er algengast að færri en fjórir skoði hverja eign í fyrstu viku sölutíma. Íbúðum til sölu heldur jafnframt áfram að fjölga en í byrjun apríl voru um 6.200 íbúðir til sölu á landinu öllu og hafði þeim þá fjölgað um tæplega 30 prósent á einu ári.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um stöðuna á fasteignamarkaði. Þar segir að framboðið hafi aukist hlutfallslega mest í nágrenni höfuðborgarsvæðisins þar sem séu nú um 67 prósent fleiri íbúðir til sölu en í apríl 2025. Sá tími sem tæki að selja núverandi framboð miðað við söluhraða síðasta mánaðar, mælist nú um níu mánuðir í nágrenni höfuðborgarsvæðisins samanborið við um sex mánuði á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar á landsbyggðinni. Sekta leigusala Í skýrslunni segir að á hafi almenn skráningarskylda leigusamninga nú verið í gildi frá áramótum og ætli HMS að nýta heimild til að sekta leigusala sem sinni ekki skráningarskyldu, finnist skýr dæmi um vanrækslu. Skráningarskyldunni er ætlað að bæta yfirsýn yfir leigumarkaðinn en leiguskrá geymir mikilvægar upplýsingar um gilda leigusamninga. Upplýsingar úr leiguskrá leiða til að mynda í ljós að aðfluttir leigjendur greiða að jafnaði hærra leiguverð en innfæddir leigjendur fyrir smærri leiguíbúðir þegar leigt er af einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu. Ný íbúðalán á breytilegum vöxtum á hverfandi hveli Um lánamarkaðinn segir að hann hafi tekið nokkrum breytingum frá því að vaxtadómarnir hafi fallið síðasta haust vegna breytts lánaframboðs. „Hlutdeild verðtryggðra lána á breytilegum vöxtum af nýjum íbúðalánum til heimila hefur skroppið verulega saman eftir vaxtadóminn en hlutdeild óverðtryggðra lána hefur aukist á móti. Í febrúar síðastliðnum tóku heimilin ný óverðtryggð lán fyrir hærri upphæð heldur en verðtryggð lán, umfram uppgreiðslur, í fyrsta skipti í þrjú ár. Þétting mætir mestri andstöðu meðal eldra fólks í úthverfum Á byggingarmarkaði var íbúðauppbygging umfram nýja íbúðaþörf í fyrra vegna lítillar fólksfjölgunar. Enn er talsverður fjöldi íbúða í virkri uppbyggingu samkvæmt marstalningu HMS, en mikill meirihluti íbúða í byggingu á höfuðborgarsvæðinu í dag eru í stórum fjölbýlum með 17 eða fleiri íbúðum í stigagangi. Ný könnun HMS bendir hins vegar til þess að búsetuóskir um fjölbýli beinist ekki síður að fjölbýlishúsum með færri íbúðum. Könnunin sýndi jafnframt að viðhorf til skipulagsmála eru misjöfn eftir aldri og búsetu. Þétting byggðar mætir mestri andstöðu meðal þeirra sem eldri eru og þeirra sem búsettir eru í úthverfum Reykjavíkur og öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í skýrslunni.
Fasteignamarkaður Húsnæðismál Mest lesið Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira