Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Hólmfríður Gísladóttir skrifar 22. apríl 2026 10:32 „Ríkisendurskoðun tekur undir með þeim fjölmörgu viðmælendum embættisins sem telja varnargarðana við Svartsengi og Grindavík hafa til þessa sannað gildi sitt sem vörn gegn hraunrennsli. Verkfræðingar, verktakar, Vegagerðin og aðrir sem komu að hönnun varnargarðanna eða verklegum framkvæmdum unnu þrekvirki við oft krefjandi aðstæður,“ segir í skýrslunni. Vísir/Vilhelm Ríkisendurskoðun gerir ýmsar athugasemdir við það hvernig staðið var að undirbúningi og gerð varnargarða við Svartsengi og Grindavík. Lögum samkvæmt var ríkislögreglustjóra falið að fara með framkvæmd aðgerða en Ríkisendurskoðun kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að verkefnið hafi af ýmsum ástæðum reynst embættinu ofviða.
Ríkisendurskoðun hefur gefið út skýrslu um málið, eftir að hafa ákveðið að eigin frumkvæði að ráðast í stjórnsýsluúttekt á gerð varnargarðanna. Skýrslan var kynnt á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar þingsins í morgun. Samkvæmt skýrslunni telja bæði Ríkisendurskoðun og fjölmargir viðmælendur embættisins að varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt og að þrekvirki hafi verið unnið við krefjandi aðstæður. Embættið gerir hins vegar einnig ýmsar athugasemdir við utanumhaldið og segir meðal annars í ábendingum til forsætisráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins að verka- og ábyrgðaskipting þurfi að vera skýr, að ríkisaðila þurfi með reynslu og burði til stórframkvæmda og að skilgreina þurfi hvað felst í hugtakinu „mikilvægir innviðir“. Þá þurfi fjármála- og efnahagsráðuneytið að tryggja fjármögnun framkvæmda og fullnægjandi heimtur forvarnagjalds. Skorti bæði þekkingu og burði til að fara með framkvæmdirnar Með lögum um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga, sem sett voru árið 2023, var dómsmálaráðherra heimilað, að fenginni tillögu ríkislögreglustjóra, að taka ákvarðanir um nauðsynlegar framkvæmdir í þágu almannavarna. Ríkislögreglustjóra var falið að fara með framkvæmd aðgerða en samkvæmt skýrslunni fólst hlutverk embættisins aðallega í því að það lagði fram tillögur að varnaraðgerðum til ráðherra, sem byggðu á minnisblöðum hönnunar- og framkvæmdateymis svokallaðs innviðahóps. Ríkisendurskoðun kemst, eins og fyrr segir, að þeirri niðurstöðu að ríkislögreglustjóri hafi ekki haft nauðsynlega þekkingu og burði til að fara með jafn umfangsmiklar og flóknar verklegar framkvæmdir. Þá gefi gögn málsins til kynna að verkefnið hafi reynst embættinu ofviða. Áðurnefndur innviðahópur var stofnaður af almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Hópurinn var samsettur af fulltrúum verkfræðistofanna Verkís og Eflu, Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands og fulltrúar almannavarnadeildar sátu suma fundi. Samkvæmt skýrslunni áttu fulltrúar HÍ og Veðurstofu hins vegar ekki sæti í hönnunar- og framkvæmdateymi innviðahópsins. „Innviðahópurinn var ekki skipaður með formlegum hætti, þ.e. ekki liggur fyrir erindisbréf til grundvallar störfum hans. Embætti ríkislögreglustjóra skilgreindi hvorki formlegt hlutverk hópsins og markmið gagnvart stjórnvöldum, né hlutverk einstakra aðila innan hans. Þá voru engin tímamörk sett um starfsemina. Engir samningar liggja fyrir við umræddar verkfræðistofur, sem mönnuðu hönnunar- og framkvæmdateymið, um aðkomu þeirra að framkvæmdum, ábyrgð þjónustusala, tímaverð, o.s.frv. Embættið leitaði ekki til annarra verkfræðistofa við myndun innviðahópsins eða eftir að eldgosahrinan við Sundhnúksgíga hófst árið 2023,“ segir í skýrslunni. Ríkisendurskoðun kemst að þeirri niðurstöðu að ríkislögreglustjóri hefði þurft að skilgreina með mun skýrari hætti en gert var verkaskiptingu og ábyrgð einstakra aðila við uppbyggingu varnargarðanna. Tillögurnar aldrei bornar undir óháðan aðila Samkvæmt samkomulagi ríkislögreglustjóra og Vegagerðarinnar átti stofnunin að vera þátttakandi í innviðahópnum en átti ekki fastan fulltrúa. Ríkisendurskoðun segir það hins vegar hafa verið skynsama ráðstöfun þegar ríkislögreglustjóri fólk Vegagerðinni hlutverk verkkaupa ríkisins. „Vegagerðin býr yfir sérþekkingu á verklegum framkvæmdum, samningagerð vegna þeirra og fjárhagslegri umsýslu framkvæmda af álíka stærðargráðu. Enga slíka sérþekkingu er að finna hjá ríkislögreglustjóra. Vegagerðin var því betur til þess fallin að gæta hagsmuna ríkissjóðs,“ segir í skýrslunni. Áður hafði Verkís stýrt vali á verktökum fyrir hönd almannavarnadeildar. Samkvæmt skýrslunni telur Ríkisendurskoðun með öllu óljóst hvort ákvarðanir dómsmálaráðherra um uppbyggingu varnargarða hafi falið í sér heimild fyrir varnarfyllingum yfir veitumannvirki og gröft leiðarskurða. Ekki sé fjallað um slíkar framkvæmdir með beinum hætti í tillögum ríkislögreglustjóra og ákvörðunum ráðherra.Vísir/Vilhelm Ríkisendurskoðandi gagnrýnir að ríkislögreglustjóri hafi aldrei borið tillögur innviðahópsins undir óháðan aðila áður en þær voru kynntar ráðherra. Þá segir í skýrslunni að embættið hafi ekki óskað eftir sundurliðun kostnaðaráætlana né öðru niðurbroti um fyrirhugaðan kostnað. „Ríkislögreglustjóri hefði átt að leita sér óháðrar ráðgjafar svo að tryggja mætti að hagsmuna ríkissjóðs væri gætt,“ segir í skýrslunni. „Ríkislögreglustjóri gaf hönnunar- og framkvæmdateyminu engin fyrirmæli um hvernig vali á verktökum skyldi háttað né lagði fram kostnaðarviðmið. Þá gerði embættið engar ráðstafanir til að afstýra mögulegum hagsmunaárekstrum sem upp gátu komið í ljósi þess að sami aðili og sá um hönnun og undirbúning varnargarðanna hafði einnig umsjón með framkvæmdunum.“ Hvað eru „mikilvægir innviðir“? Samkvæmt skýrslunni nam áætlaður heildarkostnaður varnargarðanna um tólf milljörðum króna í árslok 2025, þar af var kostnaður vegna varnargarða við Svartsengi 6,9 milljarðar króna. Ríkisendurskoðun beinir því til fjármála- og efnahagsráðuneytisins að tryggja fjármögnun framkvæmda um leið og heimild til aðgerða liggur fyrir, komi til frekari uppbyggingar eða sambærilegra verkefna í framtíðinni. Þá segir að umtalsverður kostnaður hafi fallið á ríkissjóð vegna framkvæmda við varnargarða án þess að það liggi fyrir hvaða þýðingu hugtakið „mikilvægri innviðir“ hefur í samhengi almannavarna og hvaða innviði átti að verja samkvæmt lögunum frá 2023. Þess ber að geta að fjármála- og efnahagsráðuneytið áréttar í athugasemdum „að samkvæmt lögum um opinber fjármál er unnt að mæta tímabundnum, ófyrirséðum og óhjákvæmilegum útgjöldum annars vegar með fjárheimildum í fjáraukalögum og hins vegar greiðslum úr almennum varasjóði, þar á meðal þeim sem tengjast náttúruhamförum og almannavarnarástandi.“ Þá bendir dómsmálaráðuneytið á að fyrir Alþingi liggi frumvarp til nýrra heildarlaga um almannavarnir þar sem „ómissandi innviðir“ séu skilgreindir í fyrsta sinn.
Varnargarðar á Reykjanesskaga Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Náttúruhamfarir Almannavarnir Alþingi Ríkisendurskoðun Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Innlent Fleiri fréttir Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Sjá meira