Enski boltinn

Þriðji mark­vörðurinn stígur upp hjá Liverpool

Valur Páll Eiríksson skrifar
Woodman þakkar fyrir sig eftir fínustu frammistöðu gegn Everton um helgina.
Woodman þakkar fyrir sig eftir fínustu frammistöðu gegn Everton um helgina. Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images

Allt stefnir í að Freddie Woodman, þriðji markvörður Liverpool, byrji í fyrsta sinn fyrir liðið í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Hann muni gera það gegn uppeldisfélaginu Crystal Palace.

Woodman steig inn þegar Georgíumaðurinn Giorgi Mamardashvili fór meiddur af velli í 2-1 sigri á Everton um helgina. Hann hélt markinu hreinu þær 40 mínútur sem hann spilaði.

Mamardashvili verður frá í um tvær vikur vegna skurðar sem hann hlaut í leiknum og Alisson Becker er þegar frá vegna meiðsla. Woodman mun því líklega byrja milli stanganna þegar Liverpool mætir Crystal Palace um helgina og Woodman því byrja leik fyrir liðið í fyrsta sinn í deildinni.

Þessi enski 29 ára markvörður byrjaði að vísu leik í enska deildabikarnum, sem var einmitt gegn Crystal Palace, fyrir áramót en sá leikur tapaðist 3-0.

Hann þótti nokkuð öruggur þegar hann steig inn um helgina, sér í lagi í ljósi þess að hann kom óvænt inn á.

„Þetta var stressandi, ef ég á að vera hreinskilinn. En ég held að taugarnar hvetji mann áfram, viljinn til að gera vel og bregðast ekki öðrum. Dagleg vinna síðustu átta mánuðina hefur farið í þetta eina augnablik,“ segir Woodman.

Woodman er ekki á meðal þekktari markvarða Englands. Hann er 29 ára gamall og náði að spila níu leiki fyrir Newcastle United á milli þess sem hann fór á lán til liða á við Hartlepool, Crawley, Swansea og Bournemouth í ensku neðri deildunum og Aberdeen og Kilmarnock í Skotlandi.

Hann festi sig í sessi hjá Preston þar sem hann spilaði 138 leiki frá 2022 til 2026 en gekk svo í raðir Liverpool í sumar.

Woodman hóf feril sinn hjá Newcastle sem leikmaður en hefur alla tíð verið stuðningsmaður Crystal Palace. Það væri honum draumur að byrja sinn fyrsta leik með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni gegn þeim blárauðu.

„Það væri óraunverulegt og ótrúlegt að spila annan leik fyrir Liverpool í úrvalsdeildinni. Ég ólst upp við að styðja Palace, var boltastrákur á leikjum og spilaði gegn þeim í deildabikarnum í vetur,“

„Það gerist vonandi. Ég vil að Giorgi nái sér og líka Ali, sem er besti markvörður heims, ég vil að hann jafni sig. Við sjáum hvað gerist á laugardaginn. Ég mun sinna mínum æfingum í vikunni og undirbúa mig fyrir það að spila leikinn,“ segir Woodman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×