Andrésarleikarnir 50 ára – hálf öld af gleði, samheldni og skíðaarfleifð Ásthildur Sturludóttir skrifar 22. apríl 2026 07:02 Það er erfitt að hugsa sér Akureyri án Andrésarleikanna. Í hálfa öld hafa þeir fyllt Hlíðarfjall lífi, bundið saman kynslóðir og orðið ómissandi hluti af vetrarmenningu bæjarins. Saga þeirra á sér skemmtilegt upphaf en hún hófst á kaffistofu í Hafnarstræti 100. Það var hópur áhugamanna um skíðaíþróttir sem hittist reglulega á umræddri kaffistofu á áttunda áratugnum. Þar var staða skíðamála og framtíð íþróttarinnar rædd sem og komið reglulega inn á hugmyndina um barnamót á skíðum fyrir allt landið. Árið 1976 varð hugmyndin svo að veruleika og fyrstu leikarnir voru haldnir með 148 keppendum. Það þurfti auðvitað að fá leyfi fyrir nafninu og það var tryggt af Leifi Tómassyni, einum frumkvöðlanna, sem var í samskiptum við aðila frá Gutenberghus í Kaupmannahöfn og þannig var lagður grunnur að þeirri litríku og barnvænu ímynd sem hefur fylgt mótinu allar götur síðan. Leikarnir hafa áratugum saman verið hápunktur vetrarins á Akureyri. Skrúðgangan, sem hófst 1977 hefur verið hluti af Andrésar andar leikunum allar götur síðan og það er einstaklega gleðilegt að sjá þegar hundruð barna og fjölskyldur þeirra ganga sæl og glöð til setningar leikanna í Íþróttahöllinni. Það er ekki bara Hlíðarfjall sem verður iðandi á lífi á meðan leikunum stendur; bærinn allur verður einstaklega lifandi með þessum góðu gestum sem hingað koma víða að. Það má líka segja að fegurð leikanna birtist ekki aðeins í keppninni sjálfri heldur í ótrúlegu starfi þeirra sem standa að framkvæmd mótsins. Í gegnum árin hafa hundruð sjálfboðaliða lagt hönd á plóg. Þetta eru foreldrar, þjálfarar, félagar úr skíðafélaginu og ótal velunnarar og eftir því sem ég kemst næst þá hefur aldrei skort sjálfboðaliða og á síðari árum hefur starfsfólk leikanna verið á annað hundrað manns. Það er jú að mjög mörgu að huga. Það þarf að troða brautir, skrá keppendur, skipuleggja gistingar, sjá um öryggi, móttökur og verðlaunaafhendingar svo eitthvað sé nefnt. Þessu fólki ber að þakka einlæglega fyrir þeirra framlag enda er það sjálfboðaliðahópurinn sem gerir mótið mögulegt og ég veit að gleðin sem skín úr augum barnanna er besta þakkargjöfin til þeirra sem leggja sitt af mörkum við framkvæmdina. Í tilefni af 50 ára afmælinu verður sérstök sýning í Íþróttahöllinni með ljósmyndum, blaðaúrklippum og heimildamynd Hermanns Sigtryggssonar og Kristrúnar Lindar Birgisdóttur. Þar verður hægt að rekja sögu mótsins frá fyrstu kaffistofufundunum til metþátttöku ársins 2026. Sögurnar sem hafa orðið til á þessum tíma eru fjölmargar enda eiga leikarnir sér sérstakan stað í hjörtum svo margra. Þessar sögur lifa áfram með hverri kynslóð. Fjölskyldur koma ár eftir ár, afar og ömmur fylgja barnabörnunum, og ekki má gleyma að margir af fremstu skíðamönnum landsins hófu feril sinn á þessum leikum. Það er við hæfi nú þegar Andrésar andar leikarnir fagna 50 ára afmæli að þátttakan er sú mesta í sögu mótsins. Hátt í ellefuhunduð börn eru skráð til leiks, frá 17 félögum víðs vegar um landið, auk gesta frá Noregi. Þetta er stórt stökk frá 930 keppendum árið áður og undirstrikar skýrt stöðu leikanna sem stærsta barnaskíðamóts landsins. Breiddin hefur heldur aldrei verið meiri og nú er í fyrsta skipti keppt í skíðaskotfimi. Þessi fjöldi segir einnig til um hversu mikil gróska er í skíðaiðkun landsmanna sem er mikið gleðiefni. Mínar innilegustu hamingjuóskir til allra keppenda og aðstandenda fyrr og síðar með árin 50 og megi Andrésar andar leikarnir halda áfram að blómstra í þeim anda sem einkennir þennan glæsilega íþróttaviðburð. Verið hjartanlega velkomin til Akureyrar kæru keppendur. Höfundur er bæjarstjóri á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Akureyri Tímamót Skíðasvæði Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar