Spjótin standa að Jóni Degi og Freyr stígur inn á milli Aron Guðmundsson skrifar 21. apríl 2026 11:02 Freyr Alexandersson, þjálfari Brann og leikmaður liðsins, Jón Dagur Þorsteinsson Vísir/Samsett Norskir fjölmiðlar sem fjalla um Íslendingaliðið Brann hafa gagnrýnt íslenska landsliðsmanninn Jón Dag Þorsteinsson ítrekað upp á síðkastið. Freyr Alexandersson, þjálfari Brann, er orðinn þreyttur á því að einstaka leikmenn séu teknir fyrir og gerðir að blórabögglum.
Brann hefur byrjað illa á yfirstandandi tímabili í norsku úrvalsdeildinni og situr í fjórtánda sæti, í sextán liða deild, með aðeins þrjú stig af fimmtán mögulegum eftir fyrstu fimm umferðir deildarinnar. Slök byrjun hjá liði sem ætlar sér að vera í toppbaráttunni ár hvert og hefur Jón Dagur, sem er á láni hjá félaginu frá þýska liðinu Hertha Berlin, verið gagnrýndur fyrir sína spilamennsku í upphafi tímabils. „Það sem mér þykir miður við orðræðuna hér í bænum er að það er alltaf farið á eftir einstaka leikmönnum. Það var Noah Holm á einum tímapunkti. Svo var það Joachim Soltvedt. Nú heyri ég af því að það sé Jón Dagur. Oftar en ekki er engin ástæða fyrir þessu. Þið viljið bara fara á eftir fólki. Íþróttastjóri félagsins hefur verið gagnrýndur, framkvæmdastjórinn líka. Ég er kannski næstur,“ sagði Freyr. Með þessu sé hann ekki að gagnrýna fjölmiðla í Bergen, heldur verja sína leikmenn. „Stundum verður þetta of mikið. Og því miður hef ég séð þetta hafa áhrif á fólk. Ég skil það hins vegar að þið eruð að sinna ykkar vinnu.“ Jón Dagur er vel meðvitaður um að spilamennska sín hafi ekki verið nægilega góð. Hann tekur ábyrgð á því, segir það hluta af því að vera atvinnumaður í fótbolta. „Þú getur ekki búist við lófaklappi þegar að þú ert að tapa leikjum. Við erum búnir að tapa nokkrum heimaleikjum nú þegar. Þetta er bara staðan. „Stuðningsmenn vilja sjá okkur vinna leiki og það er ekki óraunhæf krafa af þeirra hálfu.“ Leikjadagskráin er þétt hjá norska liðinu þessa dagana og framundan undanúrslitaleikur í norska bikarnum á heimavelli á morgun. Jón Dagur hefur spilað þrjá leiki á heimavelli Brann til þessa og hafa þeir allir tapast. „Það góða við þétta leikjadagskrá er að það koma ný tækifæri til þess að ná fram hefndum.“
Norski boltinn Mest lesið Tindastóll - Álftanes | Stórliðið mætir á Sauðárkrók Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti KR - Sindri 107-102 | Hetjuleg barátta dugði skammt Körfubolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Fleiri fréttir Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sjá meira