Brothætta karlmennskan sem óttast regnbogafána Unnar Þór Sæmundsson skrifar 20. apríl 2026 14:31 Tilvist hinsegin fólks er ekki pólitísk skoðun eða hugmyndafræði. Réttindi kvenna eru ekki pólitísk skoðun eða hugmyndafræði. Mannréttindi minnihlutahópa eru ekki álitamál, sem tvær hliðar eigi jafnan rétt á að rökræða. Þegar umræðan er römmuð inn sem „báðar hliðar hafa eitthvað til síns máls" er búið að gefa eftir mikilvægan grunn, að sumt fólk sé einfaldlega til og eigi rétt á að lifa sínu lífi án þess að það sé til umræðu. Samt gerist þetta aftur og aftur. Fánamálið sem nú geisar er nýjasta dæmið í langri sögu. Í fyrra var það kynfræðsla í skólum. Þar áður hinseginfræðsla. Þar áður Druslugangan. Þar áður þungunarrof. Þar áður hjónabönd samkynhneigðra. Alltaf sama handritið, alltaf sömu viðbrögðin, og oftar en ekki sömu andlitin. Og það eru að stærstum hluta karlar. Þetta er ekki tilviljun. Þetta er mynstur sem blasir við hverjum þeim sem nennir að kíkja á athugasemdakerfin, aðsendu greinarnar, pallborðin. Ákveðinn hópur karla telur sig til kallaðan að verja eitthvað sem enginn er að ráðast á, sjálfan sig. Því undir yfirborðinu á öllum þessum svokölluðu umræðum liggur sami óttinn, óttinn við að missa sjálfgefna stöðu, óttinn við að þurfa að deila plássinu, óttinn við heim þar sem karlmennska þeirra er ekki lengur sjálfgefinn mælikvarði á allt annað. Þessi karlmennska er brothætt af því að hún byggir á yfirburðum sem eru að molna. Þegar eitthvað brothætt finnur fyrir þrýstingi, þá berst það um. Regnbogafáni verður skyndilega ógn. Kynfræðsla verður innræting. Jafnrétti verður árás. Það sem áður var sjálfsagður hluti af samfélaginu, að sumir eigi meiri rétt en aðrir er nú kallað sanngirni þegar reynt er að leiðrétta það. Stærsti sigur þessa hóps er innrömmunin sjálf. Að hafa náð að sannfæra fjölmiðla, stjórnmálamenn og jafnvel suma bandamenn um að þetta séu umdeild mál sem þurfi að ræða frá báðum hliðum. Að tilvist transfólks sé eitthvað sem megi hafa skoðun á. Að það sé málefnaleg afstaða að vera á móti því að börn læri um fjölbreytileika. Að fáni sem táknar að fólk megi vera til sé einhvers konar pólitísk yfirlýsing sem kalli á mótvægi. Það er hún ekki. Þegar einhver segist „bara vera ósammála” því að hinsegin fólk fái sama pláss og aðrir, þá er viðkomandi ekki að taka þátt í lýðræðislegri umræðu. Viðkomandi er að halda því fram að sumt fólk eigi minni rétt en annað. Það er ekki skoðun sem á heima í umræðunni. Það er afstaða sem samfélagið á að hafna, rétt eins og það hefur áður hafnað öðrum afstöðum sem byggðu á því sama, að sumir séu minna virði en aðrir. Við sem stöndum hinum megin og erum meirihlutinn, þó það heyrist ekki alltaf, þá berum við ábyrgð á því að spila ekki með. Að kalla hlutina réttum nöfnum. Að neita að taka þátt í umræðu þar sem tilvist fólks er sett á vogarskálar er ekki lausnin. Að styðja opinskátt við hinsegin fólk, konur, innflytjendur og alla þá hópa sem þessir sömu menn hafa í sigtinu til þess eins að fiska ódýr atkvæði er það sem okkur ber samfélagsleg skylda til að gera. Fáninn er ekki málið. Hann hefur aldrei verið málið. Málið er hvort við ætlum að halda áfram að láta eins og mannréttindi séu skoðun eða hvort við ætlum loksins að segja það upphátt sem allir vita. Það eru ekki tvær hliðar á þessu máli. Höfundur skipar 4. sæti á lista Pírata fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Unnar Þór Sæmundsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar