Takk leikskólakennarar og starfsfólk Súsan Ósk Scheving Thorsteinsson skrifar 20. apríl 2026 13:47 Takk fyrir að hafa hjálpað barninu mínu með hluti sem ég vissi ekki að það þurfti hjálp með. Takk fyrir að hafa setið með okkur foreldrunum á fundum og velt upp nýjum leiðum til málörvunar, sésniðnar að okkar barni. Takk fyrir að vera með framburðarfrávik á hreinu og hughreysta okkur að þetta tiltekna frávik væri ekkert til að hafa áhyggjur af. Takk fyrir að hjálpa ofur feimna, ljúfa bangsanum okkar að finna röddina sína og þora aðeins meira á hverjum degi. Takk fyrir að hjálpa barninu mínu að byggja upp þol, seiglu og skráp utan um þetta stóra hjarta – án þess þó að kæfa það. Takk fyrir að taka eftir því sem við höfðum ekki þekkingu til að sjá – hvort sem það var í fínhreyfingum, grófhreyfingum eða einhverju sem við kunnum ekki einu sinni nafnið á. Takk fyrir að standa með barninu okkar. Takk fyrir skimanirnar, útskýringarnar og þolinmæðina – og fyrir að vísa okkur áfram þegar þess þurfti. Takk fyrir að hjálpa barninu mínu að blómstra, Takk fyrir að vera með barninu mínu í liði. Takk fyrir að sjá styrkleikana, jafnvel þegar þeir passa ekki inn í kassann. Takk fyrir að sjá að hæfni barnsins í tilteknu fagi er ólík, en engu síðri, en hæfni annara barna, í sama námsefni. Takk fyrir að finna aðrar leiðir þegar fyrsta leiðin virkar ekki. Og þriðja. Og sú fimmta. Takk fyrir að búa til áskoranir sem ýta undir þroska, en brjóta ekki niður. Takk fyrir að kenna barninu mínu svo miklu meira en að kubba og klæða sig, skeina sér og snýta sér – þó það skipti líka máli. Takk fyrir að vera sérfræðingar í börnum. Og takk fyrir allt hitt.Allt sem við sjáum ekki.Allt sem við spyrjum ekki um.Allt sem þið gerið samt, á hverjum einasta degi. Takk fyrir að kenna. Höfundur er þakklátt foreldri leikskólabarns, stjórnarkona í foreldrafélagi leikskóla, meistaranemi í heimspeki og með takmarkað þol fyrir illa ígrunduðum athugasemdum í garð leikskólakennara og starfsfólks. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Takk fyrir að hafa hjálpað barninu mínu með hluti sem ég vissi ekki að það þurfti hjálp með. Takk fyrir að hafa setið með okkur foreldrunum á fundum og velt upp nýjum leiðum til málörvunar, sésniðnar að okkar barni. Takk fyrir að vera með framburðarfrávik á hreinu og hughreysta okkur að þetta tiltekna frávik væri ekkert til að hafa áhyggjur af. Takk fyrir að hjálpa ofur feimna, ljúfa bangsanum okkar að finna röddina sína og þora aðeins meira á hverjum degi. Takk fyrir að hjálpa barninu mínu að byggja upp þol, seiglu og skráp utan um þetta stóra hjarta – án þess þó að kæfa það. Takk fyrir að taka eftir því sem við höfðum ekki þekkingu til að sjá – hvort sem það var í fínhreyfingum, grófhreyfingum eða einhverju sem við kunnum ekki einu sinni nafnið á. Takk fyrir að standa með barninu okkar. Takk fyrir skimanirnar, útskýringarnar og þolinmæðina – og fyrir að vísa okkur áfram þegar þess þurfti. Takk fyrir að hjálpa barninu mínu að blómstra, Takk fyrir að vera með barninu mínu í liði. Takk fyrir að sjá styrkleikana, jafnvel þegar þeir passa ekki inn í kassann. Takk fyrir að sjá að hæfni barnsins í tilteknu fagi er ólík, en engu síðri, en hæfni annara barna, í sama námsefni. Takk fyrir að finna aðrar leiðir þegar fyrsta leiðin virkar ekki. Og þriðja. Og sú fimmta. Takk fyrir að búa til áskoranir sem ýta undir þroska, en brjóta ekki niður. Takk fyrir að kenna barninu mínu svo miklu meira en að kubba og klæða sig, skeina sér og snýta sér – þó það skipti líka máli. Takk fyrir að vera sérfræðingar í börnum. Og takk fyrir allt hitt.Allt sem við sjáum ekki.Allt sem við spyrjum ekki um.Allt sem þið gerið samt, á hverjum einasta degi. Takk fyrir að kenna. Höfundur er þakklátt foreldri leikskólabarns, stjórnarkona í foreldrafélagi leikskóla, meistaranemi í heimspeki og með takmarkað þol fyrir illa ígrunduðum athugasemdum í garð leikskólakennara og starfsfólks.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar