„Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. apríl 2026 09:49 Sara Pétursdóttir er hætt sem Glowie og ætlar að einbeita sér að myndlist og móðurhlutverkinu. Tónlistarkonan Sara Pétursdóttir, betur þekkt sem Glowie, segir Glowie-kaflanum í sínu lífi lokið, allavega í bili. Síðustu fjögur ár hefur tónlistarferill hennar verið í dvala og nú virðist hún tilbúin að segja alveg skilið við hann. Hún muni í staðinn einbeita sér að myndlist, móðurhlutverkinu og kaffigerð.
Sara greinir frá þessum tíðindum í myndbandi á Instagram og skýrir þar ákvörðun sína. „Glowie er búin að vera í dvala í nokkur ár því ég hef verið að sinna öðrum áhugamálum sem ég hef fyrir utan tónlist og að einbeita mér að því að vera mamma. Ég á nefnilega tveggja ára strák, sem reyndar hlustar á mig syngja á hverjum einasta degi því ég elska tónlist og ég elska að syngja. En ég elska líka myndlist og kaffigerð, ég elska kaffi, en mest af öllu elska ég litla strákinn minn,“ segir hún í myndbandinu. Sara tilkynnti árið 2022 að hún ætlaði sér að taka pásu frá tónlistinni og einbeita sér að því að vera bara Sara Pétursdóttir. Því hefði fylgt mikið álag að vera í sviðsljósinu frá unga aldri og því ætlaði hún að taka sér tíma í að vera fullorðin. Nú lokar hún Glowie-kaflanum endanlega. „Ég vil að þið vitið að mér þykir vænt um ykkur, þið sem eruð enn að fylgja mér og hlusta á gömlu Glowie-lögin. En Glowie-kaflanum í lífi mínu er lokið, í bili allavega. Framvegis þá megið þið kalla mig Söru, Söru Péturs,“ segir hún jafnframt og nefnir að fylgjendur megi eiga von á myndlist og kaffimyndböndum á síðunni. Sara sló upphaflega í gegn þegar hún sigraði söngvakeppni framhaldsskólanna árið 2014 og gaf í framhaldinu út lagið „No More“ undir nafninu Glowie. Árið 2017 skrifaði hún undir samning við útgáfurisann Columbia í London, gaf út fjölda smáskífa og stuttskífuna Where I Belong árið 2019. Myndband Söru má sjá í heildinni hér að neðan: View this post on Instagram A post shared by Sara Péturs (@itsglowie)
Tímamót Tónlist Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Fleiri fréttir Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Lífið