Þjónustuskerðing Sorpu Baldur Guðmundsson skrifar 20. apríl 2026 10:15 „Markmið breytinganna er að einfalda móttöku, stytta biðtíma og bæta nýtingu á svæðunum. Þær byggja á vinnu starfsfólks SORPU, sveitarfélaganna og stjórnar SORPU.“ Svona hljóðar niðurlag fréttar sem birtist á vef Sorpu 18. mars síðastliðinn. Í fréttinni eru þær breytingar boðaðar að á móttökustöðvum Sorpu á Dalvegi og í Jafnaseli er nú ekki lengur tekið við „rúmfrekum úrgangi“. Á bannlistanum eru meðal annars húsgögn, timbur, gler, rúmdýnur, reiðhjól, dekk og flísar. Stöðvarnar voru notaðar af of mörgum, segja þeir. Þannig vildi til laugardaginn 11. apríl að þeim tímapunkti í heimilisrekstrinum var náð að óumflýjanlegt var að fara í Sorpuferð. Kerran var hlaðin af því sem fellur til á nútímalegu fjölskylduheimili en á ekki heima í grenndargámi. Góssið var vandlega bundið niður. Á Dalveginum, sem er næsta stöð við heimili mitt, leit út fyrir að vera lokað. Þegar betur var að gáð reyndist stöðin vera opin. Tveir starfsmenn litu á farminn og bar þeim saman um að á þessa móttökustöð ætti ég ekkert erindi. Þeir útskýrðu afsakandi fyrir mér breytingarnar og vísuðu mér á Sævarhöfða eða á Vellina í Hafnarfirði. Þeir bættu reyndar við að ég mætti búast við að bíða lengi í biðröð. Þegar mér varð ljóst að ég þyrfti að fara með hlassið um stórar umferðaræðar í aprílrokinu ákvað ég að stoppa á miðju planinu innan stöðvarinnar og huga að bindingum fyrir langferðina. Það var auðvelt því þar var ekki nokkurn viðskiptavin að sjá. Þriðji starfsmaðurinn kom þá út á plan og bauðst til að hjálpa mér við spottana. Hann hafði fátt annað að gera, sagði hann, en að vísa fólki frá. Hann bætti svo afsakandi við að þessar breytingar hefðu ekki verið hans hugarfóstur. Það hafði reyndar ekki hvarflað að mér. Við Sævarhöfða blasti við mér löng bílaröð. Eftir um hálftíma bið eftir því að komast inn á svæðið tók á móti okkur þreyttur en lipur starfsmaður sem vísaði okkur veginn innan stöðvarinnar. Í stuttu samtali við hann kom fram að ákvörðunin um þessar breytingar hefði ekki verið tekin af starfsfólki. „Ég hefði betur verið heima í dag,“ sagði hann einlægur. Innan stöðvarinnar mátti ég bíða í annan hálftíma eftir rampi. Rifjum upp markmið þessara breytinga, að „einfalda móttöku, stytta biðtíma og bæta nýtingu á svæðunum“. Ég er ekki viss um að starfsfólkið sem vinnur á Sævarhöfða sé sammála því að markmiði Sorpu um að einfalda móttöku hafi verið náð. Ég get sjálfur vottað um að þetta er ekki til þess fallið að stytta biðtíma og mér er til efs að nokkur geti með góðri samvisku kvittað undir það að þessi tilhögun sé til þess fallin að bæta nýtingu á svæðunum. Í besta falli blasir við að þessi markmið hafa mistekist. Einhver gæti fullyrt að þau fælu í sér gaslýsingu fyrir notendur þjónustunnar. Manni er sagt að þetta sé til þess að gera hlutina betri þegar reynsla notenda er sú að þeir eru miklu verri. Mín upplifun er sú að um hreina þjónustuskerðingu sé að ræða. Það er illskiljanlegt hvernig lausnin við yfirfalli á litlum stöðvum geti falist í því að loka og vísa fólki á stöðvar sem geta ekki tekið við yfirfallinu. Skyldi rýmri opnunartími þessara stöðva aldrei hafa komið til greina? Ný móttökustöð er í undirbúningi við Lambhagaveg, í námunda við Korputorg. Þá á að loka stöðvunum á Dalvegi og Jafnaseli endanlega og svo skella í lás á Sævarhöfða. Við það lengist akstur drjúgs hluta íbúa með sorp enn frekar. Þær lokanir verða sennilega til þess að stórbæta þjónustuna. Höfundur er íbúi í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sorpa Mest lesið Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
„
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar