Fjölmenningin í Hafnarfirði! Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar 20. apríl 2026 08:46 Sem fulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði fór ég á þing um fjölmenningu í Hafnarfirði sem haldið var í Hafnarborg 16. apríl. Í Hafnarfirði búa um 33.600 íbúar og þar af eru um 6.150 með erlent ríkisfang eða rúm 18%. Þar eru Pólverjar langfjölmennastir. Túlkar voru á staðnum til að túlka yfir á pólsku, spænsku og arabísku. Viðburðurinn byrjaði á því að bæjarstjórinn bauð alla velkomna, hélt stutta tölu og síðan tók við formleg dagskrá. Fulltrúi frá Rauða krossinum kom og sagði frá starfi sem þau fara fyrir varðandi að hjálpa útlendingum að aðlagast. Félagasamtökin GETA kynntu einnig sína starfsemi sem felst í því að vinna að jákvæðu fjölmenningarlegu samfélagi. Einnig var kynning frá Brúarsmiðum sem eru menningartenglar sem starfa á vegum mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar. Hlutverk þeirra er að byggja brýr milli menningarheima, efla menningarnæmi og styðja við farsælt samstarf skóla og fjölskyldna. Allt var þetta upplýsandi og hollt fyrir hvern og einn að fá kynningu á þessu mikilvæga starfi sem snýr að því að hjálpa útlendingum að aðlagast samfélagi okkar hér í Hafnarfirði. Að loknum fyrirlestrum var skipt upp í hópa og fengu hóparnir verkefni sem fólst í því að taka samtalið um hvernig betur mætti fara í samfélagi okkar þegar kemur að málefnum útlendinga. Það sem vakti athygli mína var að hvergi komu fram kröfur frá innflytjendum um að við ættum að breyta einhverju hjá okkur sem er skýrt dæmi um skautun í umræðunni sem er alltof ráðandi þegar málefni innflytjenda ber á góma, þar erum við sjálf okkur verst. Það sem þau þrá mest af öllu er að fá fleiri tækifæri til að læra íslensku ásamt meiri aðstoð við heimanám barna sinna í formi vinnustofa sem áður voru á bókasafni Hafnarfjarðar. Einnig hafa þau mikinn áhuga á því að fá að leggja sitt af mörkum við að gera gott samfélag betra. Þeim fannst orðið „fjölmenning“ fráhrindandi þar sem þau vilja fá tækifæri til að aðlagast og verða gildir samfélagsþegnar. Einnig vilja þau að börn sín fái að vera í aðgreindum bekkjum til að ná tökum á tungumálinu áður en þau eru sett með íslenskum börnum. Miðflokkurinn í Hafnarfirði styður þær kröfur. Við viljum sjá móttökukennslu sem gefur nýkomnum börnum tækifæri til að ná tökum á íslensku áður en þau eru sett í almenna bekki. Það er skynsemishyggja. Höfundur skipar 3. sæti á lista Miðflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar