Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. apríl 2026 06:47 Næstu tveir dagar munu leiða í ljós hvort frekari viðræður verða á milli Bandaríkjanna og Íran. Trump hefur enn og aftur málað sig út í horn, með því að hóta eldi og brennisteini ef samningar nást ekki. Getty/Anna Moneymaker Ríkismiðlar í Íran greindu frá því í gærkvöldi að stjórnvöld í Tehran hefðu engar áætlanir uppi um að taka þátt í viðræðum við fulltrúa Bandaríkjanna í Pakistan. Nokkrum klukkustundum áður hafði Donald Trump lýst því yfir að sendinefnd landsins myndi ferðast til Islamabad í dag.
Fréttastofan IRNA sagði ákvörðun stjórnarinnar megja rekja til yfirdrifinna krafa Bandaríkjamanna, óraunhæfra væntinga og mótsagna og stöðugra breytinga á afstöðu þeirra. Embættismenn í Íran hafa sakað Trump um að fara með fleipur í opinberum yfirlýsingum en hann hefur ítrekað sagt að samkomulag sé í höfn um birgðir Írana af auðguðu úrani og gefið til kynna að Íranir væru viljugir til að láta af auðgun úrans. Þetta virðist hins vegar vera einn af ásteytingarsteinunum í viðræðunum. Trump ítrekaði í samtali við Fox News í gær hótanir sínar um að Íran yrði „sprengt í loft upp“ ef Íranir gengju ekki að skilmálum Bandaríkjanna. Forsetinn hefur margoft lýst því yfir að mikilla tíðinda sé að vænta í viðræðum Bandaríkjanna og Íran, án þess að það hafi raungerst. Mike Waltz, sendiherra Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar, endurómaði bjartsýnistal forsetans í gær og sagðist í samtali við ABC News gera ráð fyrir því að næsta viðræðurlota myndi skila markverðum árangri. Spennan í samskiptum ríkjanna magnaðist í gær en þá tilkynnti Trump að Bandaríkjamenn hefðu tekið íranskt flutningaskip nærri Hormuz-sundi. Talsmenn íranska hersins sögðu skipið hafa verið að koma frá Kína og að viðbragða væri að vænta við „sjóráni“ Bandaríkjamanna. Báðir aðilar hafa sakað hinn um að hafa brotið gegn vopnahléinu sem rennur út í þessari viku.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira