Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir skrifar 19. apríl 2026 07:33 Þegar landsmálin fá allt sviðsljósið er hætta á að við gleymum þeim grundvallarhagsmunum sem standa okkur næst. Það eru hagsmunir sem við fáum sjálf ráðið á sveitarstjórnarstiginu. Börnin og ungmennin okkar eiga að vera í forgangi. Þau eru okkar dýrmætasta auðlind og velferð þeirra endurspeglar hversu vel okkur tekst til við uppbyggingu samfélagsins í Múlaþingi. Öflug þjónusta við börn og ungmenni er hornsteinn velferðar Við þurfum að byggja upp Múlaþing þar sem tækifærin eru jöfn, óháð búsetu. Í því felst að styrkja tómstunda-, frístunda- og íþróttastarf, ásamt því að tryggja betri geðheilbrigðisþjónustu á öllum skólastigum. Þegar okkur tekst að styðja betur við börnin okkar, skilar það sér í bættu samfélagi fyrir okkur öll. Við þurfum að efla úrræði fyrir börnin og styrkja samstarfið milli skóla og sveitarfélags. Kennarar og annað starfsfólk á öllum skólastigum er í fremstu víglínu. Til þess að hlúa betur að þörfum barna og ungmenna þarf að gefa þeim sem sinna þeim betri úrræði. Hver með sínu nefi Íþróttir og frístundastarf eru mikilvægur hlekkur í uppeldi og lýðheilsu barna okkar. Við þurfum að vinna náið með íþróttafélögunum að því að tryggja fjölbreytni í íþrótta- og tómstundastarfi svo öll börn finni eitthvað sem eflir þau og gleður. Í dreifbýlu sveitarfélagi eins og Múlaþingi eru samgöngur grundvallarforsenda fyrir blómlegu tómstundastarfi. Við beitum okkur af festu fyrir bættum samgöngum. Múlaþing er mikilvægt efnahagssvæði fyrir allt landið og við komum því skýrt á framfæri við stjórnvöld að samgöngubætur hér eru forsenda fyrir jöfnum tækifærum barna og ungmenna á Austurlandi. Ekkert barn skilið eftir útundan Andleg heilsa barna varðar okkur öll, við munum tryggja að nauðsynleg geðheilbrigðisþjónusta sé aðgengileg öllum börnum og ungmennum óháð búsetu. Við munum fylgja fordæmi þeirra sveitarfélaga sem hafa stóraukið samráð milli skóla, barnaverndar og heilbrigðiskerfisins. Þetta hefur skilað árangri sem skiptir sköpum. Það er okkar hlutverk að skapa umhverfi þar sem börn finna fyrir öryggi og fá hjálp strax, áður en vandinn vex. Ábyrgð og fagmennska Ábyrgur rekstur sveitarfélagsins er forsenda þess að við getum staðið við loforð okkar um bætta þjónustu. Hver króna sem sparast með bættri stjórnsýslu mun nýtast við að efla stofnanir sveitarfélagsins sem eru hornsteinn blómlegs atvinnulífs á svæðinu. Hagsmunagæsla sem skiptir sköpum Við munum gæta hagsmuna sveitarfélagsins alls gagnvart stjórnvöldum. Múlaþing er mikilvægt efnahagssvæði og við eigum tilkall til sanngjarnrar hlutdeildar í þeim verðmætum sem hér verða til. Við munum beita okkur af festu fyrir því að ríkisstjórnin skili fjármunum til baka inn í okkar landshluta. Þetta er ekki bara spurning um fjármuni, heldur sanngirni við okkur sem hér búum. Við látum verkin tala fyrir framtíð Múlaþings. Höfundur er oddviti framboðs Austurlistans og Viðreisnar í Múlaþingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Múlaþing Viðreisn Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar