Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar 17. apríl 2026 11:00 Húsnæðismarkaðurinn á Íslandi hefur á síðustu áratugum þróast þannig að húsnæði er í auknum mæli orðið fjárfesting og markaðsvara fremur en samfélagsleg nauðsyn. Sú þróun hefur hækkað aðgangshindranir að húsnæði fyrir verkafólk, ungt fjölskyldufólk og þau sem höllustum fæti standa í samfélaginu. Þessi þróun hefur verið ríkjandi í Reykjavík, en hún er ekkert síður hér á Akureyri. Þrátt fyrir að húsnæðisverð sé lægra hér en á höfuðborgarsvæðinu hefur kostnaður við húsnæði samt vaxið hraðar en laun margra hópa, og húsnæðiskostnaður er einn þyngsti útgjaldaliður tekjulágra heimila á Íslandi. Frá sögulegu sjónarhorni er þessi þróun afleiðing þess að húsnæði hefur verið undirorpið verðmyndun markaðarins frekar en samfélagslegu skipulagi. Skipulagi sem meðal annars er á forræði sveitarfélaga. Þegar húsnæði verður tæki til auðsöfnunar fyrir landeigendur, fjárfesta og verktaka skapast hvati til skorts, verðhækkana og lóðabrasks fremur en til uppbyggingar út frá raunverulegri samfélagsþörf. Afleiðing þess birtist okkur meðal annars í því að HMS hefur bent á að uppbyggingaráætlanir Akureyrarbæjar séu ekki nægilega metnaðarfullar miðað við fólksfjölgun og raunverulega húsnæðisþörf, en Akureyrarbær hefur byggt um 100 nýjar íbúðir á ári frá 2022, en HMS áætlar að þörf hafi verið og mun vera nær 200 íbúðum á þessum árum og næstu 10 árum. Akureyrarbær hefur verulegt svigrúm til að bregðast við þessari þróun. Samkvæmt rammasamningi ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu á húsnæði eiga 30% nýrra íbúða að vera óhagnaðadrifnar íbúðir, til dæmis leigufélög og hlutdeildarlán, og eiga 5% að vera félagslegt húsnæði á vegum sveitarfélagsins. Sveitarfélagið á að stórauka framboð á óhagnaðardrifnu húsnæði, bæði leigu- og búseturéttaríbúða, nýta stofnframlög í meira mæli og úthluta lóðum sérstaklega til félagasamtaka, óhagnaðardrifna leigufélaga, og húsnæðissamvinnufélaga fremur en til verktaka, auk þess að fjölga félagslegum íbúðum á vegum sveitarfélagsins. Einnig þarf húsnæðisuppbygging að vera samþætt loftslags- og skipulagsstefnu bæjarins. Hæfileg og sjálfbær þétting byggðar, blönduð hverfi og aukin nálægð við þjónustu og almenningssamgöngur draga úr bílaþörf heimila og lækka þannig heildarframfærslukostnað fjölskyldna samhliða minni kolefnislosun. Þetta er þegar í samræmi við yfirlýsta loftslagsstefnu Akureyrarbæjar. Loks ætti Akureyrarbær að skoða að lækka gjaldskrár þar sem hægt er og þjónustukostnað heimila í heild. Draga þarf úr kostnaði foreldra vegna leikskóla með það að markmiði að grunnþjónustan verði gjaldfrjáls, efla leiðarnet strætó svo almenningssamgöngur verði raunhæfur valkostur fyrir fleiri og styrkja tekjulægri hópa og þau sem eiga erfitt með að standa undir húsnæðiskostnaði, meðal annars með sérstakri húsnæðisaðstoð. Með því að líta á þessi útgjöld sem samtengda þætti framfærslukostnaðar fremur en aðskilin tekjusvið sveitarfélagsins má móta heildstæða stefnu sem gerir fólki og fjölskyldum kleift að setjast að og lifa, og eignast börn án þess að skuldsetja sig yfir þolmörk. Samhliða þessu þarf einnig að skoða tekjuöflun sveitarfélagsins með gagnrýnum hætti og meta hvar svigrúm er til aukins jöfnuðar, í samvinnu við Alþingi þar sem við á. Akureyrarbær á að vera raunverulegur búsetukostur fyrir fólk á öllum lífsskeiðum og fólk úr öllum stéttum, því þarf húsnæðisstefnu sem byggir á þeirri forsendu að húsnæði sé ekki markaðsvara, heldur hluti samfélagslegra innviða sem er grundvöllur þess að lifa mannsæmandi lífi. Höfundur er líftækninemi, skipar tólfta sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar