D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Lovísa Arnardóttir skrifar 17. apríl 2026 08:42 Söngvarinn hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa myrt táningsstúlku. Vísir/EPA Bandaríski tónlistarmaðurinn D4vd, hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa orðið Celeste Rivas Hernandez að bana. Líkamsleifar Hernandez fundust í skotti Teslu-bifreiðar hans í fyrra. Hún var aðeins fjórtán ára þegar hún lést. Rétt nafn tónlistarmannsins er David Anthony Burke, hann er í dag 21 árs.
Málið var tekið fyrir af sérstökum dómi í Bandaríkjunum sem hefur það hlutverk að meta hvort brot hafi verið framið og hvort eigi að ákæra. Í frétt BBC segir að í tilkynningu frá lögreglunni í Los Angeles í gær hafi komið fram að Burke hefði verið handtekinn og væri í gæsluvarðhaldi og gæti ekki losnað með tryggingu. Málið fer fyrir dómstóla í Los Angeles á mánudag. Í frétt BBC segir að söngvarinn hafi ekki tjáð sig mikið um málið en talsmenn hans hafi sagt hann vinna með lögreglunni. Líkamsleifar Hernandez Rivas fundust 8. september í framskotti Teslu eftir að starfsmenn dráttarbílafyrirtækisins Hollywood Tow fundu sterka lykt í kringum bílinn. Eftir að þeir opnuðu skottið blöstu þá við líkamsleifar í plastpoka. Teslan hafði verið dregin í burtu af bílastæði í Hollywood-hæðum þar sem nágrannar sögðu bílinn hafa verið kyrrstæðan í meira en mánuð. Réttarmeinafræðingi tókst svo í krufningu að bera kennsl á Hernandez Rivas. Að hans mati hafði hún þá verið látin í nokkrar vikur og líklega verið í skottinu í töluverðan tíma. Dánarorsök liggur ekki fyrir en andlát hennar er rannsakað sem manndráp. Týndist í apríl 2024 Fjölskylda stúlkunnar tilkynnti hana týnda í apríl árið 2024 en í frétt BBC segir að það hafi ekki verið í fyrsta sinn sem hún strauk að heiman. Hún hafi búið í um 120 kílómetra fjarlægð frá þeim stað sem hún fannst á. Sérstakur kviðdómur tók málið fyrir í desember á síðasta ári en handtaka Burke er það fyrsta sem gerist í málinu síðan þá. Í frétt BBC segir enn fremur að takmarkaðar upplýsingar hafi verið gefnar út um rannsókn málsins en í meðferð kviðdómsins hafi þó verið greint frá því hverju Hernandez Rivas klæddist og að hún hafi verið með húðflúr á vísifingri sem á stóð Shhh. Burke er með sams konar húðflúr samkvæmt fréttinni. Aflýsti tónleikaferðalagi Söngvarinn aflýsti heimsferðalagi sínu stuttu eftir að lík hennar fannst. Fram hefur komið að bæði Crocs og bandaríska fatamerkið Hollister hættu við í kjölfar rannsóknar að hafa hann í markaðsefni sínu. Þá tilkynnti söngkonan Kali Uchis að hún myndi fjarlægja tónlist sem þau gerðu saman af streymisveitum.
Bandaríkin Erlend sakamál Tónlist Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Fleiri fréttir Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Sjá meira