Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar 16. apríl 2026 12:17 Ég var knattspyrnudómari í þrjátíu ár. Hérlendis og erlendis, á leikjum á öllum stigum fótboltans. Þegar dómari stendur úti á velli, með ellefu fíleflda leikmenn, svo ekki sé spurt að öllum frábæru stuðningsmönnunum að öskra á sig er eitt alveg skýrt: Verkin tala, ekki orðin. Sama gildir í stjórnmálum. Loforð eru til að efna Fyrir fjórum árum setti Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi fram 100 loforð. Ekki almenn markmið eða hlýjar hugsanir. 100 framkvæmanleg loforð um raunverulegar breytingar í lífi Kópavogsbúa. Nú, við lok kjörtímabilsins, hafa um 90 loforðanna verið efnd og önnur komin í vinnslu. Þú deilir ekki við dómarann. Verkin tala. Þetta skiptir okkur öll máli Ég hef búið í Kópavogi frá 1974 og fylgst með bænum vaxa og dafna. Ég hef alið upp börn sem nutu góðs af skólum, leikskólum og íþróttastarfi, en nú er komið að því að gera enn betur, fyrir næstu kynslóð. Það er það sem knýr mig áfram. Leikskólarnir – Kópavogsmódelið Eitt af því sem gleður mig mest er hvað hefur gerst í leikskólumálum. Með Kópavogsmódelinu, sem tekið var upp haustið 2023, fá fleiri börn leikskólapláss .Allt niður í tólf mánaða börn komast í leikskóla í Kópavogi. Engin leikskóladeild hefur þurft að loka vegna manneklu síðan módelið kom til sögunnar. Þetta er kerfisbreyting sem skiptir gríðarlegu máli fyrir barnafjölskyldur. Kópavogur ruddi brautina og nú eru önnur sveitarfélög farin að fylgja góðu fordæmi. Íþróttalífið – HK og Breiðablik Ég hef verið stoltur þátttakandi í íþróttalífi Kópavogs í áratugi. Fyrst sem leikmaður, svo sem dómari, foreldri og stuðningsmaður. Ég veit hversu miklu máli öflug íþróttafélög skipta. Í íþróttunum vex þrautseigjan, börn læra að vinna með öðrum og sem mestu máli skiptir – að ekki vinnast allar orustur. Svo eru keppnisfólk íþróttafélaga Kópavogs mikilvægar fyrirmyndir. Árangur allra íþróttafélaga Kópavogs á undanförnum árum hefur verið frábær. Bærinn á þökk skilda fyrir skilning og samstarf við íþróttafélögin. Nú eru að hefjast framkvæmdir á nýjum keppnisvelli fyrir HK. Enn eitt skrefið í þá átt að gefa íþróttafólki bæjarins þau tækifæri sem það á skilið. Skattar og heimilin Á meðan ríkisstjórnin boðar sífellt nýjar álögur á landsmenn hafa Kópavogsbúar séð fasteignagjöld lækka ár frá ári. Heildarlækkunin nemur fjórum milljörðum króna yfir kjörtímabilið. Um 260 þúsund krónur sitja eftir á meðalheimili. Í dag greiða Kópavogsbúar lægstu fasteignagjöld meðal stærstu sveitarfélaga landsins. Þetta skiptir máli. Sérstaklega þegar verðlag er hátt og vextir þrengja að heimilum. Verkin tala Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi getur litið stoltur um öxl þegar þetta kjörtímabil verður flautað af. Ég býð mig fram vegna þess að ég vil taka þátt í því glæsilega uppbyggingarstarfi sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur staðið fyrir í Kópavogi. Vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn skilur það sem allt íþróttafólk og knattspyrnudómarar vita – Verkin tala. Höfundur er frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins, 8. sæti – Kópavogur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar